Veður

Veður skánar á Vest­fjörðum en él sunnan- og vestan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti um eða yfir frostmarki að deginum í dag.
Hiti um eða yfir frostmarki að deginum í dag. Vísir/Vilhelm

Hægfara lægð er nú stödd skammt vestur af landinu og benda nýjustu spár til þess að veðrið á Vestfjörðum verði mun skárra í dag en verið hefur. Þó er stutt í hvassa norðaustanátt úti á miðunum og þar lítið að breytast til að hún nái aftur inn á land.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að annars beini lægðin til okkar suðvestlægri átt, víða 10 til 18 metrum á sekúndu þegar líður á morguninn og éljum sunnan- og vestanlands.

„Á Norðaustur- og Austurlandi má búast við slyddu eða snjókomu nú í morgunsárið, en eftir hádegi léttir til á þeim slóðum. Hiti um eða yfir frostmarki að deginum.

Í fyrramálið verður áttin suðlæg eða breytileg, gola, kaldi eða strekkingur. Stöku él víða um land og vægt frost, en á morgun hlýnar sunnanlands með rigningu eða slyddu. Undir kvöld verður áttin austlæg, víða 10-18 m/s og snjókoma með köflum um landið norðanvert, en þá dregur úr vætu suðvestantil,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 5-15 m/s. Stöku él og hiti um eða undir frostmarki, en hlýnar sunnanlands eftir hádegi með rigningu eða slyddu. Austan 10-18 undir kvöld og snjókoma með köflum um landið norðanvert, en dregur úr vætu suðvestanlands.

Á fimmtudag: Norðan 10-18 á Vestfjörðum, annars hægari vindur. Snjókoma norðantil, og rigning austanlands, en úrkomulítið um landið suðvestanvert. Hiti um eða yfir frostmarki. Vaxandi norðan- og norðvestanátt undir kvöld og víða snjókoma, en stöku él syðra. Kólnar í veðri.

Á föstudag: Norðan 15-23 og snjókoma eða slydda, en úrkomulítið sunnantil. Hiti um eða undir frostmarki. Dregur úr vindi um kvöldið.

Á laugardag: Minnkandi norðlæg átt og él, en yfirleitt þurrt á Suður- og Vesturlandi. Frost 0 til 6 stig.

Á sunnudag: Austlæg átt. Stöku él og frost 0 til 8 stig, en slydda eða snjókoma með köflum við suðurströndina og hiti rétt yfir frostmarki.

Á mánudag: Austlæg átt og él á víð og dreif. Kólnar í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×