Á kjörskrá um samning VR og SA voru 39.639 VR félagar og greiddu 6982 þeirra atkvæði. Kjörsókn var því 17,61%.
5485 VR félagar greiddu atkvæði með samningunum en nei sögðu 1325 eða 18,98%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 172 eða 2,46%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR.
Kjarasamningur VR við FA var samþykktur með 80,12% atkvæða, en já sögðu 262 VR félagar og nei 60, eða 18,35%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 5 eða 1,53%. Á kjörskrá um samning VR og FA voru 1242 VR félagar og greiddu atkvæði 327, og var kjörsókn því 26,33%.
Atkvæðagreiðsla um samningana var rafræn á vr.is og stóð yfir dagana 18.- 21. mars 2024.