Erlent

ISIS lýsir yfir á­byrgð á á­rásinni í Moskvu

Samúel Karl Ólason skrifar
Mikill eldur kviknaði í tónleikahúsinu í árásinni.
Mikill eldur kviknaði í tónleikahúsinu í árásinni. AP/Vitaly Smolnikov

Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni í Moskvu í kvöld. Níutíu og þrír eru sagðir látnir og rúmlega hundrað eru særðir, eftir að hópur þungvopnaðra manna gekk inn í Crocus-tónleikahöllina og skaut þar á fólk af handahófi.

Myndbönd úr tónleikahúsinu gefi til kynna að árásarmennirnir séu minnst fjórir, vopnaðir árásarrifflum.

Nokkrir árásarmenn voru myndaðir af fólki í tónleikahúsinu.AP/Astra

Árásarmennirnir köstuðu einnig frá sér sprengjum en talið er að rúmlega sex þúsund manns hafi verið í húsinu þegar árásin var gerð, miðað við fjölda seldra miða á tónleika sem stóðu yfir.

Eldur kviknaði í húsinu en slökkviliðsmenn segjast hafa náð tökum á honum.

Sjá einnig: Um­fangs­mikil hryðjuverkaárás í Moskvu

Mennirnir eru sagðir hafa komist á brott en í yfirlýsingu frá ISIS, segir að þeir hafi myrt og sært hundruð manna. RIA fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, hefur birt mynd af hvítum Renault sem talið er að mennirnir hafi flúið í.

Umfangsmikil leit stendur yfir að mönnunum, ef marka má rússneska miðla.

Rússneskir þjóðvarðliðar á götum Moskvu í kvöld.AP/Alexander Avilov

Bandaríska sendiráðið í Moskvu varaði við því fyrr í mánuðinum að mögulega gerðu „öfgamenn“ árás í Moskvu. Í tilkynningu frá sendiráðinu kom fram að fólk skyldi forðast fjölsótta viðburði þá helgina.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í vikunni lítið fyrir viðvaranir Bandaríkjamanna og kallaði þær tilraunir til að kúga rússneskt samfélag.

Fréttamenn CNN hafa eftir heimildarmönnum sínum í leyniþjónustusamfélagi Bandaríkjanna að fyrstu upplýsingarnar um mögulega árás ISIS-liða sem tilheyra hóp sem kallast ISISKP eða ISIS-K og er virkur í Mið-Asíu og helst í Afganistan, hafi litið dagsins ljós í nóvember.

Ekki stóð í yfirlýsingu ISIS hvort árásin hafi verið gerð af ISISKP eða öðrum anga samtakanna.

Yfirvöld í Bandaríkjunum munu hafa varað Rússa við en hópurinn var stofnaður árið 2015.

Leyniþjónusta Rússlands (FSB) sagði frá því þann 7. mars, sama dag og Bandaríkjamenn gáfu út áðurnefnda viðvörun, að útsendarar stofnunarinnar hefðu komið í veg fyrir árás vígamanna ISIS á bænahús gyðinga í Moskvu.

Mennirnir hefðu hleypt úr byssum sínum þegar reynt var að handtaka þá og þeir hafi allir verið skotnir til bana.

Fréttin hefur verið uppfærð með nýjustu tölum um fjölda látinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×