Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is.
Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að búið sé að opna Laxárdalsheiði og Bröttubrekku, ef vegfarendur vilji nota þá leið sem hjáleið.
„Unnið er að því að blása á veginum en þar eru fastir flutningabílar og mikill snjór. Ólíklegt þykir að hægt verði að opna veginn fyrir hádegi en stefnt er að því að hann verði opnaður síðar í dag.“
Margir vegir séu ófærir eða lokaðir eftir nóttina en víðast hvar sé mokstur hafinn.
„Við biðjum vegfarendur um að bíða þess að vegir opni áður en lagt er á þær leiðir, því annars geta orðið tafir á opnun, lendi fólk í vandræðum.“
Uppfært klukkan 13:36:
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur vegurinn yfir Holtavörðuheiði verið opnaður á ný.