Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Magdeburg en liðið er í harði toppbaráttu í þýsku úrvalsdeildinni, stigi á eftir toppliði Füchse Berlin sem marði botnlið HBW Balingen fyrr í dag. Magdeburg á þó leik til góða ásamt Flensburg sem er í þriðja sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliðinu.
Ómar Ingi var langmarkahæstur á vellinum í dag með 13 mörk en lét það ekki duga og bætti við fjórum stoðsendingum. Hinir Íslendingarnir í liði Magdeburg, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Janus Daði Smárason. höfðu frekar hægt um sig í dag en þeir skoruðu sitt markið hvor.