Félag í eigu Árna Haukssonar festi kaup á húsinu árið 2006.
Klapparás ehf, félag í eigu Árna Haukssonar fjárfestis, hefur auglýst 300 fermetra einbýlishús við Duggufjöru á Akureyri til sölu. Félag Árna greiddi 56 milljónir króna fyrir eignina árið 2006.
Húsið stendur við tjörnina í innbænum á Akureyri sem er einn fallegasti staður bæjarins. Húsið var byggt árið 1990 og var endurnýjað að miklu leyti árið 1996.
Húsið er sérlega glæsilegt.HvammurAustan við lóðina er opið svæði að tjörninni. Umhverfið er fallegt, tjörnin og skógi vaxin brekkan.Hvammur
Á fasteignavef Vísis kemur fram að eignin er á tveimur hæðum. Samtals eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Neðri hæð hússins er flísalögð með rúmgóðu eldhúsi með ljósri viðarinnréttingu. góðu skápaplássi og stein á borðum. Borðstofa er innaf eldhúsi, þar eru flísar á gólfi og útgengt á hellulagða verönd til suðurs með heitum potti.
Óskað er eftir tilboði í húsið en fasteignamat þess er 142.000.000 kr. og brunabótamat þess er 172.700.000 kr.
Eldhús er rúmgott og með flísum á gólfi, vandaðri viðarinnréttingu með borðplötu úr stein.HvammurStofa er einkar rúmgóð og björt og skiptist hún í fallegt seturými með veglegum arni, og sjónvarpshorn.HvammurSvefnherbergi eru fjögur talsins, eitt á neðri hæð og þrjú á efri hæð.HvammurBaðherbergið á efri hæðinni er flísalagt hólf í gólf. Auk þess er ljósabekkur sem fylgir húsinu.Hvammur
Vorið er blómatímabil fyrir einhleypa einstaklinga. Með hækkandi sól og opnum hug ættu lesendur Vísis sem eru í leit að rétta makanum að líta vel yfir eftirfarandi lista sem samanstendur af eitursvölum og einhleypum karlmönnum.
Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlakona og einn eigenda Skot productions, seldi 760 fermetra einbýlishús sitt að Mávanesi 17 í Garðabæ á 850 milljónir króna. Um er að ræða dýrasta einbýlishús sem selst hefur hér á landi.