Vogunarsjóðum Akta reitt þungt högg eftir óvænt gengisfall Alvotech
![Alvotech hefur dregið talsvert súrefni til sín á markaði á síðustu vikum og mánuðum og margir fjárfestar sem og hlutabréfasjóðir höfðu lagt mikið undir. Þegar hlutabréfaverð félagsins lækkaði skarpt á skömmum tíma var það nokkurt högg fyrir sumra fjárfesta, einkum þá sem höfðu byggt upp skuldsettar stöður í Alvotech.](https://www.visir.is/i/2B572015ED065BE72F8C13CCFF1F940332B3D8446EE083A3A7329AD348737211_713x0.jpg)
Ævintýralegar sveiflur hafa verið á gengi vogunarsjóða í stýringu Akta á undanförnum vikum samhliða hröðu risi og síðan falli á hlutabréfaverði Alvotech. Sjóðastýringarfélagið hefur lagt mikið undir á Alvotech, sem fékk undir lok febrúar langþráð samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum, en einn af flaggskipssjóðum Akta tók dýfu um nærri fimmtíu prósent á nokkrum viðskiptadögum þegar það fór að síga á ógæfuhliðina hjá líftæknilyfjafyrirtækinu á hlutabréfamarkaði.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/AB8F33BBDBCC81A8B09573CC5B07655FE4FC6439C9FA06500E435A5F8C6D1ACA_308x200.jpg)
Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda
Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda.
![](https://www.visir.is/i/721E607821B202E5B2955E285B139D6EFE1EE39E408A7493B6CE6A5076BF0B29_308x200.jpg)
Búast við að Alvotech nái „verulegri“ markaðshlutdeild eftir samþykki FDA
Erlendir og innlendir greinendur hafa hækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech eftir að félagið hlaut markaðsleyfi í Bandaríkjunum og vegna tímabundins einkaréttar er líftæknilyfjafyrirtækið, ásamt samstarfsaðila sínum Teva, sagt vera í stöðu til að ná „verulegri“ markaðshlutdeild þar í landi í nálægri framtíð með sölu á hliðstæðu við Humira, að mati fjárfestingabankans Barclays. Með blessun FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech er talið að félagið muni í framhaldinu eiga auðveldara um vik að fá samþykki fyrir fleiri lyf á mikilvægasta markaði heims.
![](https://www.visir.is/i/51D6BFD2E2966C4F1A89676B05693BCF3D6A05BC39BF2CAE316C2419296B9B49_308x200.jpg)
Hlutabréfasjóðir með mikið undir í Alvotech í aðdraganda ákvörðunar FDA
Mikill meirihluti hlutabréfasjóða landsins, sem eru að stórum hluta fjármagnaðir af almenningi, er með hlutabréfaeign í Alvotech sem annaðhvort sína stærstu eða næstu stærstu eign núna þegar örfáar vikur eru í að niðurstaða fæst um hvort félagið fái samþykkt markaðsleyfi fyrir sitt helsta lyf í Bandaríkjunum. Hlutabréfaverð líftæknilyfjafyrirtækisins hefur rokið upp á síðustu vikum, meðal annars byggt á væntingum um að Alvotech muni loksins fá grænt ljóst frá Lyfjaeftirliti Bandaríkjanna.