Innlent

Birna sett sýslu­maður á Vestur­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Birna Ágústsdóttir er sýslumaður á Norðurlandi vestra.
Birna Ágústsdóttir er sýslumaður á Norðurlandi vestra. Stjr

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi, frá 1. júní næstkomandi til og með 31. maí 2025. Tilefni setningarinnar er beiðni Ólafs Kristófers Ólafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti.

Frá þessu segir á vef ráðuneytisins. Þar segir að í ljósi þess að nú standi yfir stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna og fyrirséð sé að þeirri vinnu verði ekki lokið fyrir 1. júní 2024, hafi verið ákveðið að setja Birnu Ágústsdóttur tímabundið til að gegna embættinu á Vesturlandi til viðbótar við eigið embætti á Norðurlandi vestra. Birna muni því gegna báðum embættunum á framangreindu tímabili.

„Sú ákvörðun að setja sýslumenn tímabundið yfir fleiri en eitt embætti í stað þess að skipa nýjan til fimm ára, er tekin vegna þeirra tímamóta sem sýslumannsembættin standa nú á. Verið er að móta framtíðarstefnu í málefnum sýslumanna og þykir af þeirri ástæðu ekki rétt að taka ákvarðanir til lengri tíma um embættin sem kunna að fara gegn þeirri stefnu. Þannig var Kristín Þórðardóttir, sýslumaðurinn á Suðurlandi, sett tímabundið yfir embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum í október 2023. Þessi tilhögun er einnig í samræmi við þær áherslur ráðherra í málefnum sýslumanna að unnið verði að því að fella niður áhrif umdæmismarka gagnvart almenningi,“ segir í tilkynningunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×