Sport

Mari meyr eftir sigurinn

Lovísa Arnardóttir skrifar
Elísa Kristinsdóttir og Mari Jaersk voru tvær eftir undir lokin en Mari sigraði eftir að Elísa skilaði sér ekki í mark. Elísa er til vinstri og Mari til hægri á myndinni. 
Elísa Kristinsdóttir og Mari Jaersk voru tvær eftir undir lokin en Mari sigraði eftir að Elísa skilaði sér ekki í mark. Elísa er til vinstri og Mari til hægri á myndinni.  Vísir/Vilhelm

„Bara svona meyr,“ segir Mari Järsk, um það hvernig henni líður eftir að hafa sigrað bakgarðshlaupið í ár. Mari hljóp 57 hringi og  yfir 380 kílómetra og sigraði hlaupið eftir að Elísa Kristinsdóttir skilaði sér ekki í mark á 57. hring. 

Mari segir þau Elísu og Andra hafa unnið þetta saman og þau hafi alltaf ætlað sér að brjóta metið saman. Þau Mari Andri Guðmundsson og Elísa Kristinsdóttir slógu Íslandsmet í bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa í Öskjuhlíð í hádeginu. Þá höfðu þau hlaupið 51 hring, 341,7 kílómetra, frá því á laugardagsmorgun. 

Garpur Elísabetarson fylgist með hlaupinu og tók viðtal við Mari þegar hlaupi lauk sem hægt er að horfa á hér að neðan.

„Við ákváðum að það skiptir ekki máli hver vinnur þetta hlaup,“ segir Mari og að það sé svo fallegt við þetta hlaup hvað allir styðja hvern annan. 

Spurð hvað sé næst sagði Mari það allavega ekki barneignir en að hún ætlaði að halda áfram að hlaupa í sumar.

Fyrsta nóttin erfið

Mari segist hafa komist að því eftir að hafa hlaupið stutta stund að hnéð væri bólgið og hún hafi þurft að þrauka í gegnum það. Fyrsta nóttin hafi einnig verið erfið og hún hafi þurft að fara mikið á klósettið en önnur nóttin hafi verið betri.

„Ég var svo hrædd um að ég yrði slenuð og ógeðslega þreytt. En þetta var bara fullkomið. Það var ekkert vesen. Ég hlustað á rólega tónlist og lagði mig,“ segir Mari.

Mari Järsk er alls ekki hætt að hlaupa og ætlar að hlaupa meira í sumar. Vísir/Vilhelm

Spurð hvort hún hafi gert eitthvað öðruvísi fyrir þetta hlaup segir Mari engu hafa breytt. Hún sé góð að plana hlaupin og sé vön að þreyta ekki líkamann að óþörfu.

Hlaupið var í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi og á Vísi allan sólarhringinn, alla helgina. Einnig var fylgst með því í vakt á Vísi sem er hægt að skoða hér að neðan. 


Tengdar fréttir

Þor­leifur horfði á Ís­lands­met sitt falla: „Kom á ó­vart“

Ís­lands­metið í Bak­garðs­hlaupum var slegið í dag og hefur verið marg­bætt eftir því sem líður á daginn nú þegar að tveir hlauparar standa eftir. Mari Jaersk og Elísa Kristins­dóttir. Þor­leifur Þor­leifs­son, sem var hand­hafi Ís­lands­metsins fyrir daginn í dag, gleðst með kollegum sínum en segir það jafn­framt koma sér á ó­vart ó­vænt að metið hafi verið slegið í dag.

Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu

Tilfinningarnar voru allsráðandi þegar ofurhlaupararnir Mari Jaersk, Andri Guðmundsson og Elísa Kristinsdóttir slógu Íslandsmet í Bakgarðshlaupinu í Öskjuhlíð í hádeginu. Þá höfðu þau hlaupið 51 hring, 341,7 kílómetra, frá því á laugardagsmorgun.

„Þetta er ekki fyrir hvern sem er“

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hrósar langhlaupurunum þremur sem slógu Íslandsmet í Öskjuhlíð um hádegið í dag, í hástert. Afrekið sé magnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×