Skoðun

Opið bréf til sam­göngu­ráð­herra og vega­mála­stjóra

Hópur ferðaþjóna í Dölunum skrifar

Við undirrituð, ferðaþjónar í Dölum viljum koma á framfæri hvernig ástand á vegi 60 koma við okkur. Sökum ónýtrar klæðningar á vegi, hefur nú verið tekið til þess ráðs hjá Vegagerðinni að mylja klæðninguna niður á feykistórum kafla í Dalabyggð á vegi 60, Vestfjarðavegi. Afgangurinn er allur meira og minna að molna niður. 

Það að vegurinn væri ónýtur kom engum á óvart, það hefur legið fyrir í nokkur ár og vakin athygli á því ítrekað hér heima i héraði, sem og annars staðar. M.a. í vandaðri úttekt hjá sveitarfélaginu okkar, Dalabyggð.

 Hver meðal húsvörður yrði látinn taka pokann sinn, ef svona vinnubrögð sæjust í fasteignarekstri, en þannig þurfum við að hugsa um ríkissjóð og ríkiseignir. Þetta eru verðmæti sem þarf að hámarka og viðhalda á hverjum tíma, byggja upp og fá eignirnar til að skila tekjum og draga úr kostnaði. 

Þar liggur hundurinn grafinn í okkar tilfelli. Húsvörðurinn hefur fengið undirtylluna til að spartla í götin oft og iðulega. Deild Vegagerðarinnar í Búðardal á orðu skilið fyrir viðbragðsflýti og natni við að reyna að bjarga málunum, með holuteyminu og heflinum. En betur má ef duga skal. 

Kostnaðurinn við vegakerfið er ekki lágur á þessum tíma frá því að klæðningin varð ónýt (nokkur ár) og þangað til núna, heldur hefur hann bara lent á öðrum en ríkinu. Bílaleigur (og þar með ferðamenn) hafa greitt, rútufyrirtæki og íbúar finna fyrir sífellt hærri kostnaði af beyglum, rúðuskiptum, ónýtum dempurum, dekkjum og svo framvegis. Meira að segja bílainnflytjendur greiða, því nýjir bílar eru í ábyrgð og eiga að standast að vera keyrðir á klæddum vegi. Það hefur verið mælst gegn því hjá tilteknum rútufyrirtækjum að aka tiltekna vegi vegna hættu á skemmdum og bílaleigur eru ekkert að leiðrétta misskilninginn, þegar ferðamenn skilja skilmálana sína á þann veg að allir malarvegir séu bannaðir, en ekki einungis hálendisvegir og slóðar. Þetta er ærinn kostnaður. 

Nú er svo komið að til að heimsækja Dali er ekki hægt að koma á klæddum vegi, heldur eru malarvegir í allar áttir. Það eru ekki aðeins Dalirnir sem þannig eru skornir af nútímasamgöngukerfi þjóðarinnar, heldur allir Vestfirðirnir líka. 

Á sama tíma hefur verið dregið saman í framkvæmdum í vegakerfinu um 9% eða tæpa 3 milljarða árlega, miðað við fjárlög 2022 og uppreiknað verðlag. Í raun er það hálfgert grín að það sé verið að verja 26 milljörðum til framkvæmda í vegakerfinu (fjárlög 2024), þegar við stefnum að því að létta álagi á Suðurlandið og Reykjavík í fjölda ferðamanna, bæði hvað varðar umferð og fasteignanotkun. Það er eins og fólk skilji ekki samhengi vegakerfisins og flæði ferðamanna. 

Í fréttum árið 2020 var farið mikinn í tilkynningum um að stórar einkaframkvæmdir væru í farvatninu í samgöngumálum á næstunni. Og með því átti að verða til slaki til að veita fé til annarra framkvæmda á landsvísu. Hvar eru efndirnar? Af hverju er verið að búa til sífellt meiri viðhalds- og nýbyggingarþörf? Þetta vandamál hverfur ekki af sjálfu sér. Það þarf að verja fé til nýframkvæmda. Og okkur þætti vænt um að tekið yrði tillit til okkar eigin forgangsraðar. 

Nú í sumar megum við sem stundum ferðaþjónustu í Dölunum, búast við því að hjá okkur verði tekjufall vegna ófullnægjandi vegasambands við umheiminn. Hver borgar brúsann? Við fyrirtækin sem búum til atvinnutækifæri og gjaldeyri? Við íbúarnir sem borgum skatta? 

Hér með skorum við á samgönguráðherra og forystu Vegagerðarinnar að bregðast af festu við ástandinu. Eða að öðrum kosti að bæta okkur það fjárhagstjón sem við verðum fyrir í sumar, vegna ykkar mistaka og seinagangs. 

Fyrsta aðgerð ætti þó að vera að banna þungaflutninga á veginum, því það er stærsti skaðvaldurinn. Vegurinn er ekki hannaður fyrir svona mikla þungaumferð. Það gæti jafnvel verið skynsamlegt að skoða skipaflutinga á ný, bæði af hagsýnisástæðum og umhverfisáæstæðum.

Bjarnheiður Jóhannsdóttir 

Anna Sigríður Grétarsdóttir 

Rain Adriann Mason Linda Guðmundsdóttir 

Reynir Guðbrandsson 

Finnbogi Harðarson 

Guðrún Björg Bragadóttir 

Carolin Baare – Schmidt 

Helga Elínborg Guðmundsdóttir 

Halla Sigríður Hrefnu Steinólfsdóttir 

Auður Ánadóttir 

Guðrún Esther Jónsdóttir 

Guðrún Þóra Ingþórsdóttir

Þóra Sigurðardóttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×