Íslenski boltinn

Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson gekk í raðir KA fyrir tímabilið.
Viðar Örn Kjartansson gekk í raðir KA fyrir tímabilið. Mynd/KA

Guðmundur Benediktsson, stjórnandi Stúkunnar á Stöð 2 Sport, segir að Viðar Örn Kjartansson hafi ekki mætt á æfingu hjá KA á leikdegi. Framherjinn var ekki í leikmannahópi liðsins gegn KR á sunnudaginn.

Í viðtali við Stöð 2 Sport fyrir leikinn gegn KR sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, að Viðar hefði einfaldlega ekki verið valinn í hópinn og þyrfti að vinna í sínum málum, meðal annars varðandi líkamlegt atgervi.

Fjarvera Viðars í leiknum gegn KR var til umræðu í Stúkunni í gær. Þar veltu Guðmundur, Atli Viðar Björnsson og Baldur Sigurðsson því hreinlega fyrir sér hvort Selfyssingurinn myndi spila fleiri leiki fyrir KA.

„Þá verður við einnig að ræða Viðar Örn Kjartansson sem Haddi var spurður um í viðtali. Hann sagði bara: Hann komst ekki í hóp,“ sagði Guðmundur.

„Samkvæmt okkar heimildum mætti Viðar Örn ekki á æfingu um morguninn á leikdegi. Haldið þið að þessu sé lokið? Það er mín tilfinning, að þessu sé lokið milli KA og Viðars.“

Ganga fullt af sögum

Baldur tók þá við boltanum. „Það verður fróðlegt að sjá. Því ef þetta er rétt og hinn almenni fótboltaáhugamaður hefur pottþétt heyrt einhverjar sögur. Það ganga fullt af sögum og maður veit ekki hverjar eru sannar. Þangað til Haddi eða einhver hjá KA kemur fram og segir nákvæmlega stöðuna; þarna er gefin sú útskýring að hann sé ekki valinn í hóp,“ sagði Baldur.

Klippa: Stúkan - Umræða um fjarveru Viðars

„Þetta lítur ekki vel út. Þetta er stórt nafn. Í byrjun hefur þetta mögulega vakið miklar væntingar innan hópsins. Þetta er risa nafn og skora mikið í Evrópuboltanum. Menn fengu hann og gerðu væntingar. Hann kemur heim, skorar ekki á vellinum og maður heyrir sögur utan vallar og það er margt í gangi. Ég held að það sé erfitt að glíma við þetta. Eins og við ræddum í fyrsta leiknum var þetta veðmál. Ég veit ekki hvort þetta sé búið en vonandi fyrir KA, og það sem allir vonuðu, mun þetta borga sig. Það hefur ekki gert það hingað til og maður sér ekki hvernig það á að gerast. Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist á næstu dögum og við sjáum hvað gerist í næsta leik.“

Þarf að taka ákvörðun

Viðar kom til KA fyrir einum og hálfum mánuði eða svo og Atli Viðar sagði að ef allt væri eins og það ætti að vera væri Viðar byrjaður að spila á fullu með KA.

„Ef hlutirnir væru á hreinu og í lagi væri hann kominn í stand til að vera í leikmannahópnum. Það er alveg ljóst,“ sagði Atli Viðar.

„Við vitum að Viðar Örn Kjartansson er nógu góður í fótbolta til að vera kominn í hópinn hjá KA þannig að mig langar í rauninni að hvetja þá til að taka þá ákvörðun sem þeir telja sig þurfa að taka. Það er ómögulegt fyrir þá, hópinn, stuðningsmennina og alla að hafa þetta svona hangandi yfir.“

Umræðuna um Viðar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

„Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap

Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, fór „langt yfir strikið“ í reiðikasti sínu á Kópavogsvelli í gærkvöld en á nokkuð í land með að ná nafna sínum Arnari Gunnlaugssyni, þjálfara Víkings, sem er „langgrófasti þjálfarinn“ í Bestu deildinni í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×