Innlent

Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vos­búð

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lambið var flækt í girðinguna. Myndin er tekin í gær, 7. maí.
Lambið var flækt í girðinguna. Myndin er tekin í gær, 7. maí. Mynd/Steinunn Árnadóttir

Dýraverndunarsamband Íslands (DÍS) segir Matvælastofnun ekki sinna lögbundnu hlutverki sínu að verja velferð dýra á bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarbyggð. Stjórn samtakanna hefur sent frá sé ákall um að dýrunum á bænum verði tafarlaust komið til bjargar. Bent hefur verið á slæman aðbúnað dýra við bæinn um árabil. 

Í tilkynningu frá DÍS segir að sauðféð á bænum sé „í miklum vanhöldum“ og komið utan girðingar þar sem engin beit er við bæinn. Þá kemur fram að ærnar séu margar farnar að bera án eftirlits sem sé brot á reglugerð um velferð sauðfjár og geitfjár.

Sauðféð veikt

„Nýborin lömb eru að finnast dauð og deyjandi á svæðinu úr vosbúð. Sauðféð er jafnframt margt orðið veikt og ein ær hefur fundist dauð. Um er að ræða mál þar sem dýr hafa verið látin þjást árum saman meðan málið er í ferli hjá yfirvöldum sem tryggja ekki velferð þessara dýra,“ segir í tilkynningu DÍS.

Kindurnar geta ekki leitað inn. Myndirnar eru teknar í gær, 7. maí. Mynd/Steinunn Árnadóttir

MAST hefur tilkynnt samtökunum að málið sé í ferli en DÍS telur stofnunina þurfa að bregðast strax við. Ef þau geri það ekki sinni þau ekki sínu lögbundna hlutverki að verja velferð dýra og hefur DÍS sent ábendingu þess efnis til umboðsmanns Alþingis. Samtökin segja ástand dýranna afar lélegt og hafa tilkynnt málið til Umboðsmanns Alþingis.

Lagaleg skylda að koma dýrunum til bjargar

Fjallað var um MAST og viðbrögð stofnunarinnar í stjórnsýsluúttekt hjá Ríkisendurskoðun seint á síðasta ári. Þar kom, meðal annars, fram um eftirlit MAST með velferð búfjár að nálgun stofnunarinnar sé í sumum tilfellum svo varfærnisleg að hún gangi í raun gegn markmiðum laga um velferð dýra.

Ærnar bera án eftirlits. Myndin er tekin í gær. Mynd/Steinunn Árnadóttir

„Það er lagaleg skylda MAST að koma dýrum í neyð til bjargar, það er ekki síður siðferðisleg skylda samfélagsins alls,“ segir DÍS

Það er ákall frá stjórn DÍS að dýrunum að bænum Höfða í Þverárhlíð verði tafarlaust komið til bjargar og lífs með því að yfirvöld bregðist við. Málið þolir enga bið, í húfi er velferð, líf og heilsa dýranna á Höfða.

Slæmur aðbúnaður um árabil

Áður hefur verið fjallað um aðbúnað dýra á bænum en fyrir tæpu ári síðan vakti dýraverndunarsinninn Steinunn Árnadóttir athygli á slæmum aðbúnaði dýranna. Fleiri Borgfirðingar tóku undir það í viðtölum. Steinunn gerði helst athugasemdir við húsakostinn á bænum en ekki væri pláss fyrir allt féð. Auk þess væri ekkert fylgst með kindunum sem væru á túnum annarra bænda.

Í desember í fyrra fór svo hópur dýraverndunarsinna í Þverárhlíð til að bjarga fé sem enn var úti. Ein kindanna var vafin í gaddavír.

„Það er orðið mikið fannfergi þarna og við köllum þetta að það sé jarðbann, þær hafa ekkert fóður og ekkert til að næra sig á og þar eru náttúrulega öll lög um velferð dýra brotin. Þetta eru kindur, sem eiga að vera á húsi, þær eiga að hafa fóður og þær eiga að hafa skjól og það er ekki í boði fyrir þær þó maður sé búin að biðja um það,“ sagði Steinunn Árnadóttir þá í viðtali, en hún skipulagði hópferðina.


Tengdar fréttir

Afmennska að bjarga ekki dýrum í neyð!

Við öll er látum okkur málefni dýravelferðar varða, höfum endurtekið séð ábendingar um alvarleg vanhöld skepna á bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarfirði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×