Var upplýsingagjöf í covidfaraldrinum upplýsingaóreiða? Steingrímur Atlason skrifar 8. maí 2024 21:13 Á tímum covids var hægt að nálgast ástand faraldurs á www.covid.is. Þangað leituðu landsmenn til þess að halda sig upplýsta um stöðu faraldurs á hverjum tíma. Einnig héldu Almannavarnir upplýsingafundi með landlækni, sóttvarnarlækni, starfsmönnum allmannavarna og annarra sérfræðinga í samfélaginu. Á upplýsingafundunum var farið yfir stöðuna á hverjum tíma, fjölda smita osv. Sóttvarnaraðgerðir voru kynntar sem mótvægisaðgerðir til að halda smitum og álagi á sjúkrastofnunum landsins í lágmarki. Þegar litið er á upplýsingaframsetningu “Stöðu smita innanlands“ á www.covid.is, nú www.island.is, sést að x-ás er skipt í mislöng tímabil. Allt frá einum og hálfum mánuði upp í heilt ár. Efri mörk y-ás eru einnig mishá. Allt frá 50 upp í 5000 einstaklinga. Þegar þessum fimm gröfum er púslað saman í eina mynd sést heildarmyndin. Hvert bútagraf er afmarkað með rauðum ferhyrning á meðfylgjandi grafi. Þar sést smitbylgja eitt og tvö árið 2020, toppur 100 einstaklingar á dag. Bylgja þrjú árið 2021, toppur 200 einstaklingar og bylgja fjögur í byrjun árs 2022, toppur 5000 einstaklingar. Greinilegt er að smitbylgja eitt og tvö fyrir byrjun bólusetninga miðsumars 2021 voru lægri enn síhækkandi smitbylgja þrjú og fjögur. Á grafi tvö er sett saman staða smita innanlands og bóluefnastaða í landinu í prósentum sótt af https://vaccinetracker.ecdc.europa.eu. Hér sést að stór hluti landsmanna fóru í grunnbólusetningu, sprauta eitt og tvö fyrri hluta árs 2021. Einum mánuði eftir að 40% landsmanna höfðu verið bólusettir hefst þriðja smitbylgja með um helmingi hærri topp en bylgja nr. eitt og tvö. Sama atburðarás á sér stað í lok ársins 2021. Einum mánuði eftir að 40% landsmanna höfðu þegið 1. booster hefst fjórða smitbylgja með um 50 földum topp miðað við bylgju nr. eitt og tvö. Með heildræna sýn á samspili bólusetninga og smitbylgna á Íslandi veltur sú stóra spurning upp! Voru smitbylgjurnar afleiðing bóluefnaherferðarinnar? Eftir hverja bólusetningu birtist nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem orsakaði nýja smitbylgju. Eftir grunnbólusetningu birtist delta afbrigðið og eftir 1. booster birtist ómíkron afbrigðið. Á vef Landspítalans er hægt að nálgast upplýsingar um COVID-19 á Landspítala. Þar sést að hlutfall tví og þrí bólusettra í hópi “daglegur fjöldi sem bætist við innlagða með COVID…” er hærra enn þrí bólusetningahlutfall í landinu og á pari við tví bólusetningahlutfallið í landinu. Ef bóluefnin hefðu veitt vernd gegn innlögn væri hlutfall bólusettra lægri enn hlutfallsleg bólusetningastaða í landinu. Vernd bóluefnanna gegn innlögn er því hverfandi. Á legudeildum í bylgju fjögur var hlutfall bólusettra a.m.k einu sinni hærra enn þríbólusetningahlutfall í landinu. Vernd bóluefnanna gegn innlögn á legudeild er því hverfandi. Óbólusettir voru einungis líklegri til að leggjast inn á gjörgæslu í bylgju fjögur. Í þeirri bylgju var fjöldi einstaklinga á gjörgæslu 6-8 þar af 1-3 bólusettir a.m.k einu sinni. Upplýsingar um stöðu á gjörgæslu var ekki birt ef sjúklingar voru færri en fimm. Staðhæfing: Grunnbólusetningu og booster þurfti til að óbólusettir væru verr settir enn bólusettir. Skiptar skoðanir eru í vísindasamfélaginu um ágæti nýrra lyfja við covid-19. Þegar litið er á breytt bólusetningahlutfall á gjörgæslu milli bylgju þrjú og fjögur vaknar sú spurning hvort munurinn gæti verið vegna mis árangursríkra meðferðaúrræða? Hér væri kjörið tækifæri til að: 1) Rannsaka mun á meðferð sjúklinga í bylgju þrjú og fjögur. 2) Hvort bólusettir og óbólusettir hafi fengið mismunandi meðferð gegn covid eftir mati greiningaraðila. Vísindarannsóknir sem sýndu fram á vernd gegn veirunni voru framkvæmdar fyrir grunnbólusetningu 2021. Úrtökin voru nokkur þúsund. Bólusetningahlutfall náði ekki einu prósenti! Umhverfið mætti kalla microumhverfi sambærilegt við microeconomics í viðskipta/hagfræði. Rauntölur hér að ofan sýna hins vegar raunverulega vernd sem var hverfandi. Rauntölurnar eru afsprengi macroumhverfis þar sem 70-80% landsmanna bólusettu sig. Hátt bólusetningahlutfall skapaði “stress” á veiru í macroumhverfi (70-80%) sem næst ekki í microumhverfi (1%). Stress á veiru>>>Nýtt afbrigði>>>Ný smitbylgja. Því má segja að rannsóknir lofuðu vernd allt upp í 100% sem var mæld í microumhverfi en raunin var 0%, jafnvel neikvæð með tilkomu nýs afbrigðis. Loforð um ágæti, áreiðanleika og vernd bóluefnanna er ekki sjáanleg hér eftir tiltekt í upplýsingaóreiðu á covid.is, yfirferð á rauntölum covid faraldursins samanborið við virtar vísindagreinar. Voru loforðin meira sannindi í heimi Petri skála á tilraunastofu “in vitro” enn lífinu “in vivo” og samfélaginu? Höfundur er með B.S. -gráðu í líffræði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru sálfræðingarnir? Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvar er grunnskólinn? Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Er lýðræðislegt að senda vopn til Úkraínu? Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Það á ekki að vera dekur að geta sótt sér sálfræðiþjónustu Ólafía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Um bókun 35, EES samninginn, Evrópusambandið og Bretland Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk, ekki fjárfesta Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar