„Þar sem við erum að byggja upp hágæða matvælaframleiðslu á Laxabraut þá teljum við óásættanlegt að í sömu götu standi til að byggja mölunarverksmiðju sem fer alls ekki saman við matvælaframleiðslu né heldur að bygging hafnar á því svæði sem við erum að sækja jarðsjó,“ segir í bréfinu.
Þá kemur einnig fram að fyrir liggi fleiri verkefni sem eru í undirbúningi í matvælaframleiðslu á Laxabraut.

„Og því er það okkar mat að mölunarverksmiðja eigi alls ekki heima þarna sem nú er fyrirhugað að halda íbúakosningu um samhliða forsetakosningum 1. júní 2023.“
Kosið um skipulag samhliða forsetakosningum
Já, til stendur að kjósa um málið samhliða forsetakosningum, skipulag bæjaryfirvalda sem gerir ráð fyrir starfsemi Heidelberg. Íbúafundur verður haldinn í kvöld um málið en það er býsna margt sem menn vilja setja út á varðandi fyrirhugaðar stórkarlalegar fyrirætlanir með mölunarverksmiðju Heidelberg í bænum, sem tengist umferðaröryggi, mengun og malarnámi bæði úr sjó og á landi.
Vísir ræddi stuttlega við Elliða Vignisson bæjarstjóra en hann er staddur úti í Portúgal. Hann sagðist ekki ætla að skipta sér mikið af fundahöldum, hann taldi íbúa færa um að mynda sér skoðun á málinu.
Vísir hefur bréfið undir höndum, sem sent var í gær, en First Water er að byggja laxeldi á landi við Laxabraut 15-29 í Þorlákshöfn. Um er að ræða framkvæmd fyrir rúmlega 100 milljarða á næstu 6 árum, sem mun vera stærsta einkaframkvæmd á Íslandi frá landnámi. Við erum því ekki að tala um neina smásmíði.
Matvælaframleiðsla og mölunarverksmiðja fari ekki saman
Markmið framkvæmdanna er skýrt, að framleiða hágæða lax þar sem seiðaeldi fer fram í fersku vatni, áframeldi fer fram í jarðsjó sem dælt er upp í gegnum 5 – 10 þúsund ára gömul hraunlög sem eiga að tryggja mikil gæði þeirrar vöru sem félagið er að framleiða.
Í bréfinu kemur fram að nafn félagsins vísi til þeirra gæða sem eru í jarðsjónum sem dælt er uppúr og mikilvægt sé að engin starfsemi fari fram nálægt starfseminni sem ógnað gæti starfsöryggi eða skapað hættu á mengun í sjónum þar sem félagið er með starfsemi.
