Vindur talsvert hægari en í gær Eiður Þór Árnason skrifar 20. maí 2024 08:18 Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði. Hlýjast verður á Austurlandi í dag. Vísir/Arnar Hægfara lægð sést nú skammt vestur af landinu og mun suðlægri vindátt því gæta á landinu. Vindurinn verður talsvert hægari en í gær eða yfirleitt á bilinu 5 til 13 metrar á sekúndu. Hvassara við norðurströndina í fyrstu.
Dálitlar skúrir og milt veður, en súld eða rigning með köflum austantil, einkum suðaustanlands. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast á Austurlandi. Á Suðausturlandi styttir upp seinnipartinn á morgun, en áfram má búast við skúrum á á vestanverðu landinu og heldur meiri úrkomu á miðvikudag. Gular viðvaranir vegna veðurs voru gefnar út fyrir hina ýmsu landshluta í gær en þær hafa nú allar fallið úr gildi. Samkvæmt Vegagerðinni er snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði nú í morgun, hálka á Öxnadalsheiði og þæfingsfærð á Vatnsskarði eystra. Frekari upplýsingar um færð á vegum má finna á vef Vegagerðarinnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan 5-13 m/s og skúrir, en norðaustlægari og rigning á Vestfjörðum. Hiti víða 5 til 10 stig, en þurrt að mestu og heldur hlýrra á austanverðu landinu. Á fimmtudag: Suðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og víða skúrir eða slydduél, en gengur í suðaustan 8-13 með rigningu á vestanverðu landinu um kvöldið. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast eystra. Á föstudag: Stíf suðaustanátt og rigning eða súld, en hægara og úrkomulítið austantil. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands. Á laugardag: Austlæg átt, víða kaldi og lítilsháttar væta, en bjartviðri norðan heiða. Hlýtt í veðri. Á sunnudag: Útlit fyrir suðaustanátt og rigningu með köflum, en að mestu þurrt á Norðurlandi. Kólnar heldur í veðri.
Veður Mest lesið Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Innlent Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður Innlent „Faðir minn stakk rýting í bakið á mér“ Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Innlent Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag Innlent Fleiri fréttir Slydda og snjókoma fyrir norðan Útlit fyrir talsverða rigningu Mögulegt hvassviðri fyrir sunnan Lægðagangur í suðri og hæðasvæði í norðri Allhvass vindur sunnantil og dálítil væta Víðast skúrir og él og herðir á vindi í kvöld Úrhellisrigning á Vesturlandi Gular viðvaranir og ekkert ferðaveður Gæti sést til eldinga á vestanverðu landinu Myndarlegir úrkomubakkar fara yfir landið Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu: Verkefni björgunarsveita um 300 í gær Óvenjulegt að allt landið sé undir Eldingar víða um land: Litlar sem engar skemmdir í Hallgrímskirkju Vaktin: Aftakaveður gengur yfir landið Appelsínugular viðvaranir taka gildi: Stormur og sums staðar ofsaveður Tjón víða í Norðfirði eftir öfluga vindhviðu Appelsínugular viðvaranir: Gæti minnt á óveðrið 2015 Víða allhvasst og éljagangur Nýr veðurstofuvefur kominn í loftið Ferðalangar taki mið af hríð og hvössum vindum Gengur í sunnanstorm og leiðindaveður um allt land Stórhríð og foktjón í vændum Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Djúp lægð beinir illviðri til landsins Næsta lægð skellur á landið og von á asahláku og hvassvirði „Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Appelsínugular viðvaranir bætast við þær gulu Gengur í storm með slyddu eða snjókomu „Hvert kemst vatnið? Allt þetta vatn sem er á leiðinni?“ Gefa út gula viðvörun fyrir landið allt Sjá meira