Vélinni, sem er af gerðinni Boeing 777, var lent í Bangkok í Tælandi eftir atvikið, sem varð klukkan átta í morgun að íslenskum tíma. Þar var hinum slösuðu var komið undir læknishendur. 211 voru um borð og átján í áhöfn að sögn flugfélagsins.
Í tilkynningu harmar félagið atvikið og sendir samúðarkveðjur til aðstanda hins látna. Enn er nokkuð óljóst hvað nákvæmlega gekk á um borð í vélinni í morgun.
Það er algengt að vélar lendi í ókyrrð í háloftunum þótt alvarleg atvik á borð við þetta séu fremur fátíð.