Í fréttum Stöðvar 2 var sent beint út frá Reykjavíkurflugvelli en þangað voru þá komnar tvær flugvélar af þeim fimm sem áætlað er að millilendi á Íslandi á næstu dögum á leið sinni frá Norður-Ameríku til Evrópu.

Þær eru allar af gerðinni DC-3, eða C-47 Douglas Dakota, eins og herútgáfan kallast. Þær munu taka þátt í minningarathöfnum í tilefni þess að þann 6. júní næstkomandi verða 80 ár liðin frá innrásinni í Normandí, D-deginum svokallaða.

Þriðja flugvélin og sú frægasta í þessum leiðangri, sem nefnist „That’s All, Brother”, lenti svo á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan átta í kvöld. Fjórða vélin er strand í Narsarsuaq á Grænlandi vegna bilaðrar bensíndælu og fimmta vélin bíður sömuleiðis viðgerðar í Bandaríkjunum til að geta haldið för áfram.

Fyrir áhugamenn um sögu styrjaldarinnar og flugsöguna var hins vegar fagnaðarefni að sjá „That’s All, Brother” koma inn til lendingar í kvöld. Hún var forystuvél innrásarinnar í Normandí, leiddi flug áttahundruð flugvéla frá Bretlandi til Frakklands í hernaðaraðgerð sem markaði þáttaskil í stríðinu. Hún er af mörgum talin sögufrægasta flugvél sem enn flýgur og líta Bandaríkjamenn á hana sem þjóðargersemi.

Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, sagði þetta veislu fyrir flugáhugamenn.
„Já, heldur betur. Þegar við sýnum og leyfum fólki að skoða þessar vélar í þessu návígi þá kemur alltaf fjöldi manns að skoða. Þetta er alveg frábært tækifæri til að sjá þessar sögufrægu vélar.
Þeim fækkar kannski tækifærunum hér eftir því sem fram líða stundir að sjá þessar vélar í flughæfu ástandi og fljúgandi,” sagði Matthías.

Það segir sitt um þróun mála að fyrir fimm árum, þegar 75 ára afmælis D-dagsins var minnst, millilentu fimmtán þristar í Reykjavík. Núna er áformað að þeir verði aðeins fimm, af þeim hafa tveir bilað á leiðinni.
„Þetta hefst nú allt vonandi fyrir rest. En það er rétt, þeim fer fækkandi. Þessvegna er kjörið tækifæri að mæta og skoða þessar vélar núna, bara í miklu návígi, að geta snert þær og skoðað þær bara í fyrstu persónu,” sagði Matthías.

Samkvæmt upplýsingum frá flugþjónustunni ACE FBO, sem annast afgreiðslu vélanna, áforma áhafnir þeirra þriggja sem komnar eru til Reykjavíkur, brottför klukkan 8:30 í fyrramálið, á miðvikudagsmorgni. Vonast er til að tvær þær síðustu, sem biluðu á leiðinni, skili sér til Íslands á næstu dögum.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Hér má sjá forystuvél Normandí-innrásarinnar koma inn til lendingar fyrir fimm árum, í leiðangri til að minnast 75 ára afmælis D-dagsins: