Lífið

Af vængjum fram: „Aldrei“ notað fíkni­efni og er alls ekki með nein húð­flúr

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Jón elskar sterka vængi en sósurnar geta samt sem áður tekið á.
Jón elskar sterka vængi en sósurnar geta samt sem áður tekið á. Vísir

Jón Gnarr forsetaframbjóðandi segist elska sterkan mat. Hann hefur líklega manna mest að gera þessa dagana þar sem hann sinnir hundrað prósent vinnu og býður sig fram til forseta. Hann segir að sig hafi lengi dreymt um að eiga tvífara.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í áttunda þætti af skemmtiþáttunum Af vængjum fram, nýjum skemmtiþætti á Vísi í tilefni af forsetakosningum. Þar setjast forsetaframbjóðendur niður og gæða sér á sífellt sterkari kjúklingavængjum á milli þess sem þeir ræða lífið og tilveruna í einlægu spjalli.

Klippa: Af vængjum fram - Jón Gnarr

„Ég hef aldrei á ævinni unnið svona svakalega mikið,“ segir Jón Gnarr meðal annars í þættinum. Hann fer nú með hlutverk í sjónvarpsþáttum, sinnir því á daginn en sinnir framboðinu á kvöldin og er nýskriðinn af sviði þar sem hann fór með stórt hlutverk í leikritinu Björk of course.

Jón segir langbest ef hann væri opinber starfsmaður. Það sé þó ekki staðan. Hann segist hafa látið sig dreyma um tvífara til að sinna ýmsum hlutum fyrir hann.

Þá ræðir Jón fíkniefnanotkun, húðflúr og hvenær hann vaknar á morgnana. Honum finnst auka korter á morgnana gríðarlega mikilvægt. Hann ræðir líka leyndarmál sín, hvað hann hafi talið að yrði grafið upp um sig í framboði og þá syngur Jón þjóðsönginn á sinn einstaka hátt.

Horfa má á fleiri þætti af skemmtiþættinum Af vængjum fram á sjónvarpsvef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.