Því verða hitatölur heldur lægri en í gær en þó ætti hitinn að ná um og yfir 18 stig þar sem best lætur. Í öðrum landshlutum verður hitinn á bilinu 8 til 15 stig, svalast þar sem þokulofts gætir við ströndina.
Nokkuð greiðfært erum landið samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Hægt er að fylgjast með nýjustu veðurspá á vef Veðurstofunnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag og þriðjudag:
Fremur hæg breytileg átt, skýjað með köflum og sums staðar dálítil væta. Líkur á þokumóðu við ströndina. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast inn til landsins.
Á miðvikudag:
Norðvestlæg átt, 3-10 m/s, hvassast við suðurströndina. Dálítil væta á víð og dreif, en bjart með köflum sunnanlands. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á fimmtudag:
Suðvestlæg átt með vætu, en lengst af þurrt suðaustantil. Hiti 7 til 13 stig.
Á föstudag og laugardag:
Útlit fyrir ákveðna sunnan- og suðvestanátt með rigningu, en úrkomulítið austanlands.