Hér að neðan má sjá ellefu eftirtektarverð eldhús sem prýða falleg íslensk heimili.
Hlýlegir og mildir tónar
Á fimmtu og efstu hæð við Haukahlíð í Valshlíði má finna glæsilega 281 fermetra íbúð. Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og samliggjandi rými sem býður upp á sannkallaða partýstemningu. Eldhúsið er opið og bjart með fallegri og hlýlegri viðarinnréttingu sem nær upp í loft og ljósum stein á borðum. Fyrir miðju er glæsileg eyja sem hægt er að setjast við og skilur rýmin að. Í lofti í eldhúsinu er viðarpanell með innfeldri viftu og lýsingu sem gefur rýminu sjarmerandi dýpt.
Retró fílíngur
Við Laufásveg í Reykjavík er einstök 212 fermetra sérhæð sem færir mann aftur í tímann með retró stíl. Húsið sem var byggt árið 1969 var endurnýjað að miklu leiti árið 2017 með tilliti til byggingarstíl hússins. Í eldhúsinu eru fallegir mynstraðir glergluggar sem poppa rýmið upp á sjarmerandi máta til móts við hvíta eldhúsinnréttingu og klassíska hönnunarmuni.l
Rýmið sem sameinar stórfjölskylduna
Við Holtsbúð í Garðabæ er að finna 274 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með stærðarinnar eldhúsi sem er fullkomið fyrir stórar fjölskyldur. Innréttingin er á tvo vegu með langri eyju fyrir miðju. Innréttingin er ljósgrá með fallegum stein á borðum. Eldhúsið er hlýlegt og opið með glugga á marga vegu.
Svart og elegent
Í þessu flotta eldhúsi við Dalbraut má sjá elegant svarta innréttingu yfir vegginn og hvítan Terrazzo marmara á borðum. Andstæðurnar virðast rugla aðeins í rýmisgreindinni. Grænar plöntur, lýsing og gólfefni gefur rýminu hlýlega ásýnd.
Einfalt er best
Einfaldleikinn er oft bestur. Við Blásali í Kópavogi er fagurt og stílhreint eldhús með rúmgóðri hvítri innréttingu á þrjá vegu. Á veggnum fyrir ofan eldhúsvaskinn er VERA-hillan frá Former sem setur punktinn yfir i-ið í rýminu.
New York loft- stíll
Sérsmíðaðar innréttingar úr dökkum við og marmara prýða sérdeilis glæsilegt eldhús við Hverfisgötu í Reykjavík. Sólveig Andrea Jónsdóttir innanhússarkitekt endurhannaði eignina á vandaðan máta árið 2016 í svokölluðum New York-loftstíl. Eldhúsið, sem er opið við stofu, gefur heildarmynd alrýmisins sjarmerandi yfirbragð þar sem marmaraklædd eldhúseyja er í aðalhlutverki.
Ferskir straumar og borðkrókur
Bláir veggir og vegleg sérsmíðuð viðarinnrétting prýðir eldhúsið í fallegri sérhæð við Melhaga í Vesturbæ Reykjavíkur. Notalegur borðkrókur er innst í rýminu sem var einkennandi fyrir eldhúsrýmin á fyrri hluta síðustu aldar. Á þeim tíma fór borðhaldið að mestu fram í eldhúsinu en fært fram í borðstofu við stærri tilefni.
Litríkt og sjarmerandi
Við Skekktuvog í Reykjavík er búið að setja klassíska hvíta innréttingu í litríkan og sjarmerandi búning. Innanstokksmunir í öllum regnbogans litum prýða rýmið svo karakter húsráðenda fær að skína í gegn. Flower pot-ljós í fölbleikum lit hanga fyrir ofan eyjuna sem tóna skemmtilega við bláa litinn á veggnum.
Fágað og tímalaust
Stílhreint, fágað og tímalaust eldhús prýðir glæsilegt einbýlishús við Rjúpnahæð í Garðabæ. Rýmið er vel nýtt þar sem eldhúsið er opið á báða enda með innbyggðum tækjaskáp við vegg. Innréttingin er úr svartbæsaðri eik með dökkum marmara á borðum. Fyrir miðju er massíf marmaraklædd eldhúseyja sem gefur rýminu fágað yfirbragð.
Vel nýtt rými í Reykjanesbæ
Í fallegu einbýlishúsi frá árinu 1928 við Túngötu í Reykjanesbæ er nýlegt eldhús með hvítri innréttingu á tvo vegu og rúmgóðri eyju. Rýmið er vel nýtt þar sem skáparnir á öðrum veggnum ná upp í loft og því með miklu geymslurými. Klassískar Subway-flísar prýða vegginn á móti sem setja skemmtilegt og hrátt yfirbragð á heildarmyndina.
Hlýlegur og afslappaður stíll
Í fallegu eldhúsi við Gnoðarvog í Reykjavík má sjá dökkar framhliðar úr eik hannaðar af HAF STUDIO til móts við opnar vegghillur. Rýmið er umvafið afslöppuðum stíl í bland við smá töffaraskap þar sem gráir kalkmálaðir veggir, steyptar borðplötur og viður eru í aðalhlutverki. Nánar hér.