Lífið

Lauf­ey og Hugi til­nefnd til verð­launa

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Laufey með gítarinn á tónleikum í Hörpu í vor.
Laufey með gítarinn á tónleikum í Hörpu í vor. Mummi Lú

Laufey og Hugi Guðmundsson eru tilnefnd til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir listrænt gildi. Laufey er tilnefnd fyrir plötu sína Bewitched og Hugi fyrir óratoríuna Guðspjall Maríu. Tilkynnt verður um verðlaunahafann 22. október.

Tólf verk eru tilnefnd til verðlaunanna í ár fyrir listrænt gildi sitt. Á meðal tilnefninganna eru djass- og þjóðlagaplötur ásamt kvikmyndatónlist, sinfóníum og konsertum eftir norrænt tónlistarfólk. 

Hugi, annar frá vinstri, með verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrra.ÍSTÓN

„Tilnefningar ársins gefa okkur kost á að kafa ofan í fjölbreytt svið norrænnar tónlistar þar sem meðal annars má finna 20 mínútna langt hljómsveitarverk sem varpar ljósi á fjölbreytni og útdauða tegunda undanfarin 600 milljón ár, Grammy-verðlaunaplötu frá mest spiluðu tónlistarkonu Íslands ásamt verki sem er síkvikt listrænt kerfi auk fjölda annarra tilnefninga,“ segir á vef Norðurlandaráðs.

Tilnefningarnar eru eftirfarandi:

Danmörk

Jonas Struck: Tónlist við kvikmyndina Apalonia Apalonia

Rune Glerup: Om Lys og Lethed

Finnland

Cecilia Damström: Extinctions

Linda Fredriksson: Juniper

Færeyjar

Tróndur Bogason: Symfoni nr. 1 & 2 Sólárið

Ísland

Laufey: Bewitched

Hugi Guðmundsson: Guðspjall Maríu

Noregur

Anne Hytta: Brigde

Tyler Futrell: Stabat Mater

Svíþjóð

Anders Hillborg: Cellokonsert

Sara Parkman og Hampus Norén: Eros agape philia

Álandseyjar

Peter Lång: LUFT

Það voru fulltrúar dómnefndar tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs sem tilnefndu verkin tólf. Tilkynnt verður um sigurvegara tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs sjónvarpsþætti hinn 22. október sem sýndur verður í öllum norrænu löndunum. Handhafa verðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á verðlaunahátíð í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Reykjavík í 44. viku ársins. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.

Um tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 1965. Þeim er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunin eru til skiptis veitt annars vegar núlifandi tónskáldi og hins vegar tónlistarhópi eða -flytjanda. Í ár renna verðlaunin til tónskálds.

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Markmiðið með verðlaunum Norðurlandaráðs er að vekja athygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála og að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál.


Tengdar fréttir

Laufey skein skært á Met Gala

Tónlistarkonan, súperstjarnan og Grammy verðlaunahafinn Laufey fékk boð á eftirsóttasta tískuviðburð í heimi, Met Gala í New York. Hún skein skært í gærkvöldi í bleikum síðkjól frá tískuhúsinu Pra­bal Gur­ung.  

Tárin runnu niður kinnar

Ég sit við hringborð á veitingastað í Hörpu. Staðurinn heitir víst Hnoss. Ég var að læra það. Það er hlegið og grínast. En ég get ekki hugsað um neitt nema tónleikana sem ég var á. Mér finnst við vera að brjóta lög með því að kryfja ekki upplifunina sem við urðum öll vitni að. Við skálum einu sinni, fyrir mögnuðum tónleikum. Mér finnst ég verða að segja öllum frá. Komast í tölvu. Skrifa. Það er ekki á hverjum degi sem maður tárast á tónleikum.

Verðlaunaplötur úr ýmsum áttum

Kraumsverðlaunin voru afhent á Kex í gærkvöldi og í sextánda sinn. Að þessu sinni voru það þau Apex Anima, Elín Hall, Eva808, Neonme, Spacestation og ex.girls sem hlutu verðlaunin, sem veit eru fyrir þær hljómplötur sem þykja skara fram úr á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.