Skoðun

For­setinn minn

Eygló Egilsdóttir skrifar

Ég kaus Höllu Tómasar fyrir átta árum. Fyrir tíma Covid. Áður en þjóðarleiðtogar á Íslandi og annars staðar tóku varasöm skref í átt að alræði. Áður en yfirvöld leyfðu embættismönnum, sem enginn kaus, að stýra nánast öllu lífi einstaklinga á Íslandi, og áður en það var ljóst að krumlur alþjóðasinna teygðu sig inn fyrir landamæri Íslands.

Það hefur margt breyst á átta árum, samfélagið okkar, heimsmyndin og ég sjálf. Og afstaða mín er allt önnur í dag, ekki síst vegna atburða síðustu ára og þeirrar staðreyndar að fólk, sem gat og hefði átt að verja mig og almenning í landinu fyrir utanaðkomandi öflum og áföllum, gerði það alls ekki.

Og hvern ætti ég þá að kjósa núna...?

Ef ég nota útilokunaraðferðina, þá veit ég að ég mun í það minnsta ekki kjósa einstakling sem er nátengdur alþjóðasinnum sem fara ekki einu sinni sjálfir eftir leikreglum sem þeir setja fyrir almenning, nema að litlu leyti. - Því allir eru jafnir, en sumir eru jafnari en aðrir.

Ég mun ekki kjósa einstakling sem í hlutverki sínu síðustu ár tók skref í átt að alræði og mun líklega aldrei þurfa að svara fyrir það í þessu embætti.

Ég mun ekki kjósa einhvern sem kemur, þrátt fyrir allt, ótrúlega vel fyrir, eiginlega eins og handritið sé æft í þaula, einhvern sem talar alltaf mjög mikið en segir lítið.

Ég mun ekki kjósa einhvern sem hefur verið álitsgjafi í stórum málum þjóðarinnar síðustu áratugi, en segist ekki muna hvar atkvæði sitt lenti í stærsta hagsmunamáli þjóðarinnar síðan Ísland fékk lýðveldi. Hvernig gæti ég treyst einstaklingi sem hefur ekki betri dómgreind en það og þorir svo ekki að viðurkenna mistök sín?

Ég mun ekki kjósa einstakling sem enga skoðun hefur á hlutum, engan innri áttavita, og ætlar alltaf að fara að ráðum síðasta ræðumanns. Það er alveg óljóst hvern væri verið að kjósa til valda á Bessastöðum.

Ég mun hins vegar kjósa Arnar Þór, sem hefur yfirgripsmikla þekkingu, mikla mannkosti, sterka réttlætiskennd og skýran áttavita í lífinu. Hann er ótengdur valdaöflum og elítu, er algjörlega óhræddur við að fara eigin leiðir jafnvel þó þær séu óvinsælar hjá ráðandi öflum.

Við þurfum meira af því í dag, að hér séu almennilega varin þau réttindi sem við fæðumst með. Ég treysti Arnari Þór vel til að fara vel með það vald sem Forseta Íslenska Lýðveldisins er falið. Hann mun gæta hagsmuna almennings, ekki valdhafa eða auðmanna.

Ég hvet þig líka til að kjósa Arnar Þór, fyrir land og þjóð!

Höfundur er viðskiptafræðingur.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×