Handbolti

Magdeburg meistari eftir stór­sigur í Mann­heim

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon hefur farið á kostum með Magdeburg í undanförnum leikjum.
Ómar Ingi Magnússon hefur farið á kostum með Magdeburg í undanförnum leikjum. getty/Eroll Popova

Íslendingaliðið Magdeburg varð í kvöld þýskur meistari í handbolta karla eftir sigur á Rhein-Neckar Löwen, 21-34, á útivelli. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem Magdeburg vinnur titilinn.

Fyrir leikinn var ljóst að Magdeburg dygði eitt stig til að tryggja sér titilinn. Og það var aldrei hætta á að annað myndi gerast. Magdeburg var alltaf með forystuna, var átta mörkum yfir í hálfleik, 11-19, og vann á endanum þrettán marka sigur, 21-34.

Magdeburg var þegar búið að vinna þýsku bikarkeppnina, HM félagsliða og er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið mætir Álaborg. Magdeburg getur því unnið fjórfalt á tímabilinu.

Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk og gaf þrjár stoðsendingar í liði Magdeburg. Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar og Gísli Þorgeir Kristjánsson átti eina stoðsendingu.

Ýmir Örn Gíslason lék í kvöld sinn næstsíðasta leik fyrir Löwen en hann fer til Göppingen eftir tímabilið. Ljónin frá Mannheim eru í 11. sæti deildarinnar.

Bergischer, sem Arnór Þór Gunnarsson stýrir, á enn möguleika á að bjarga sér frá falli eftir ævintýralegan sigur á liðinu í 2. sæti, Füchse Berlin, 29-30. Eloy Morante Maldonado skoraði sigurmarkið þegar ein sekúnda var eftir af leiknum.

Bergischer er með tuttugu stig í sautjánda og næstneðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Erlangen sem er í sætinu fyrir ofan.

Í lokaumferðinni á sunnudaginn þarf Bergischer að vinna Flensburg og treysta á að Erlangen tapi fyrir Hannover-Burgdorf. Ekki nóg með það heldur þarf Bergischer að vera með betri markatölu en Erlangen. Bergischer er núna með 72 mörk í mínus en Erlangen með 67 mörk í mínus.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×