Samfelld rigning á Suðvesturlandi en þurrt á Vestfjörðum Lovísa Arnardóttir skrifar 31. maí 2024 07:29 Á Vestfjörðum verður þurrt í dag en það verður ekki svo gott suðvestantil á landinu. Vísir/Vilhelm Í dag verður suðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu og hvassast norðvestan til. Þá verður nokkuð samfelld rigning og súld suðvestanlands, en rigning öðru hverju fyrir norðan og austan. Á Vestfjörðum verður þó líklega alveg þurrt.
Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að á morgun verði heldur hægari vindur. Í flestum landhlutum verður væta en bjart með köflum. Á Austurlandi verður yfirleitt þurrt. Þar verður einnig hlýjast, hiti upp í 16 til 19 stig, en 8 til 14 í öðrum landshlutum. Nánar á vef Veðurstofunnar. Á sunnudag er spáð ákveðinni vestanátt með skúraleiðingum, þó síst suðaustanlands. Þá kólnar heldur í veðri. Víðast hvar er greiðfært um landið en gott er að huga að stöðu færðar á vef Vegagerðar. Gasmengun frá eldgosi Gasmengun berst í suðvestlægri átt til norðausturs og gæti hennar orðið vart í Ölfusi og á höfuðborgarsvæðinu.Talsverð óvissa er með magn gastegunda frá gosstöðvunum. Hægt er að fylgjast með rauntímamælingum ýmissa gastegunda á vefnum loftgaedi.is. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 5-13 m/s. Bjart með köflum austanlands, annars skýjað og dálítil væta. Hiti 8 tll 18 stig, hlýjast eystra. Á sunnudag (sjómannadagurinn): Vestan og suðvestan 8-15 og skúrir, en úrkomulítið suðaustan til. Hiti 6 til 13 stig. Á mánudag: Norðvestanátt og skúrir eða slydduél norðanlands, en þurrt sunnan heiða. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst. Á þriðjudag og miðvikudag: Stíf norðanátt. Rigning eða slydda, einkum á Norður- og Norðausturlandi, en úrkomulítið sunnanlands. Svalt í veðri. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðanátt með lítils háttar skúrum eða slydduéljum á norðanverðu landinu.
Veður Færð á vegum Mest lesið „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Hlé vegna gagna frá ChatGPT Innlent Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Segir verkfræðinga á villigötum Innlent Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Innlent Tæknileg vandræði hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Víða bjart og fallegt sunnanlands í dag Lægð yfir landinu og skúradembur norðan- og austantil Lægð nálgast landið úr suðvestri Lægð við austurströnd en allt að 18 stig norðaustantil Djúp lægð fer yfir landið Næsta lægð nálgast landið og færir með sér gula viðvörun Skúrir síðdegis í dag Mildast sunnan heiða Hæglætisveður um helgina Milt veður fram að og um helgi en svo tekur djúp lægð við Ísland gæti kólnað þrátt fyrir hlýnun á heimsvísu Útlit fyrir rólegt veður fram á föstudag Rólegra veður en líkur á síðdegisskúrum Dregur úr vindi með morgninum Leiðindaveður um allt land vegna djúprar lægðar Önnur djúp lægð á leiðinni Gul viðvörun í Eyjum fram á kvöld og leiðindaspá áfram Alldjúp lægð færir með sér gula viðvörun Byrjar að rigna fyrir norðan en dregur úr vætu fyrir sunnan Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Viðvaranir í gildi og vindasamt og blautt framundan Illvænlegar vendingar á veðurspánni fyrir helgina Hægt veður í dag en myndarleg lægð á leiðinni Enn hætta á vatnavöxtum en dregur úr rigningunni Gul viðvörun vegna mikillar rigningar Áfram vætusamt og skýjað um helgina Áfram rigning í kortunum Kröpp og djúp lægð veldur hvassviðri Vísbendingar um „þokkalegt“ veður næstu helgi Gul viðvörun í nótt Sjá meira