Brynjar Björn staðfesti brotteksturinn í samtali við 433.is og hann hafi verið rekinn strax eftir leikinn í gær.
Grindavík hefur ekki enn unnið leik í deildinni eftir fimm leiki og situr í fallsæti með fjögur stig.
Þar kom þó fram að gengi liðsins var ekki ástæða þess að hann var rekinn.
„Kom á óvart, útskýring var ekki fá stig eða þjálfunin eða undirbúningur eða æfingar. Útskýringin var samskipti við annan flokkinn,“ sagði Brynjar í samtali við 433.is.
Ástæðuna segir hann vera að ungur leikmaður liðsins sem er sonur manns sem er háttsettur hjá félaginu hafi ekki verið í hóp um síðustu helgi.
„Aðstoðarþjálfarinn var veikur og ég var einn á svæðinu, það verður sú atburðarrás að gleymdist að láta nítjánda manninn vita að hann sé ekki í hóp. Hann var á skýrslu sem liðstjóri, hann átti að vera með okkur. Það gleymdist í látunum fyrir leik, það var óheppilegt og leiðinlegt fyrir strákinn. Það var upphafið og endirinn af þessu hjá mér,“ segir Brynjar.