Innlent

„Galið! Kosningar eru greini­lega ekki fyrir öll!“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ingvar Örn segir leiðinlegt að vinur hans hafi ekki getað kosið. Þar hafi eitt atkvæði farið í súginn.
Ingvar Örn segir leiðinlegt að vinur hans hafi ekki getað kosið. Þar hafi eitt atkvæði farið í súginn. Vísir

Ingvar Örn Arngeirsson segir að betur megi huga að fólki sem glími við áskoranir þegar komi að kosningum. Einhverfur vinur hans treysti sér ekki til að fara inn í kjörklefa og gat af þeim sökum ekki kosið í dag.

Þúsundir Íslendinga hafa nýtt kosningarétt sinn um allt land í dag og var Ingvar Örn meðal þeirra sem hélt á kjörstað með vini sínum. Áfangastaðurinn var Ölduselsskóli í Breiðholti.

„Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ segir Ingvar Örn í færslu á Facebook og segir frá vini sínum.

„Hann var búinn að ákveða hver á að vera næst forseti. En hann er með einhverfu og á erfitt með ýmsar aðstæður. Eins og kjörklefa. Vill ekki fara inn í hann. Og þá mátti hann ekki kjósa!“

Ingvar segir í samtali við fréttastofu að hann hefði mátt fylgja honum inn í klefann og merkja í réttan reit fyrir hann. Vinur hans treysti sér einfaldlega ekki inn í kjörklefann. Vinurinn hafi ekki mátt kjósa við kennaraborð í Ölduselsskóla, fyrir utan kjörklefann, og heldur ekki senda Ingvar inn í klefann í hans stað.

„Þannig missti einn frambjóðandinn eitt atkvæði í dag,“ segir Ingvar.

Þeim hafi verið bent á þann möguleika á að kjósa utankjörfundar. Þeir skoði það mögulega næst þótt hann sé ekki viss um að aðstæður þar, þó þær séu mögulega rólegri, gangi upp fyrir vin hans.

„Fólk er ólíkt og þarf mismunandi aðstoð við að gera þetta. Ég held það sé hópur sem kýs aldrei þó að þau gætu það,“ segir Ingvar.

„Gerum betur! Kosningar eiga að vera fyrir okkur öll! Líka þau sem gera hlutina aðeins öðruvísi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×