Lífið

Jón Daði og María Ósk nefndu drenginn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Jón Daði og María eignuðust sitt annað barn í lok apríl.
Jón Daði og María eignuðust sitt annað barn í lok apríl. María Ósk

Jón Daði Böðvarsson knattspyrnumaður og unnusta hans María Ósk Skúladóttir viðskiptafræðingur nefndu son sinn um helgina. Drengurinn heitir Emil Atli.

„Emil Atli Jóns­son,“ skrifaði parið við færslu á Instagram þar sem má sjá mynd af syn­in­um í peysu með nafn­ið á bakinu.

Um er að ræða annað barn parsins en fyrir eiga þau Sunn­evu Sif sem er fimm ára. Jón Daði og María greindu frá því í desember að þau ættu von á sínu öðru barni í apríl.

Fjölskyldan eru bú­sett í Bretlandi, þar sem þau hafa búið síðastliðin ár, þar sem Jón Daði spil­ar með Bolt­on Wand­erers. Fyrir það spilaði hann með enska B-deildarliðsins Wolves og Reading.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×