Innlent

VG segjast ekki ætla að gefa meiri af­slátt í ríkis­stjórninni

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
bylgjan-frettir_2024-Vísir-frétt-3x2@2x-100 1
Vilhelm

Í hádegisfréttum verður rætt við þingmann VG sem segir að flokkur hennar hafi gengið of langt í málamiðlunum í ríkisstjórninni og að ekki verði lengra gengið. 

Þá heyrum við í seðlabankastjóra um horfurnar hér á landi en hann segir að þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagslífinu sé verðbólga ekki að láta undan.

Einnig verður rætt við líffræðing sem segir ekki ólíklegt að hretið sem nú gengur yfir hafi áhrif á varpárangur hér á landi. Það komi þó ekki í ljós fyrr en síðar.

Og í íþróttapakkanum verður frækinn sigur kvennalandsliðsins á Laugardalsvelli í gærkvöldi gerður upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×