Lífið

Hjörtun stækkuðu hjá Benna Bryn­leifs og Evu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Benni og Eva eignuðust sitt fyrsta barn saman í vikunni.
Benni og Eva eignuðust sitt fyrsta barn saman í vikunni. Skjáskot/Eva

Benedikt Brynleifsson trommuleikari og Eva Brink fjármálastjóri eignuðust dreng 4. júní síðatliðinn. Þau segja soninn hafa stækkað hjörtu þeirra margfalt.

Parið deildi gleðifregnunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum. Drengurinn er þeirra fyrsta barn saman. Fyrir eiga þau samtals fimm börn.

Parið byrjaði að stinga saman nefjum síðastlið sumar.

Benedikt er einn besti trommari landsins og hefur komið víða við á ferlinum. Þar á meðal með hljómsveitinni Mannakorn og í stórum viðburðum í Hörpu, svo fátt eitt sé nefnt.

Þá var Benedikt einn af vinum hans Sjonna sem fóru fyrir hönd Íslands í Eurovision með lagið Coming home í Eurovision í Düsseldorf vorið 2011.


Tengdar fréttir

Benni og Eva eiga von á sjötta barninu

Benedikt Brynleifsson trommuleikari og Eva Brink fjármálastjóri eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið deildi gleðifregnunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×