Tindastóll-Víkingur 1-1 | Jafntefli niðurstaðan fyrir norðan eftir spennandi lokamínútur Arnar Skúli Atlason skrifar 16. júní 2024 18:00 Tindastóll jafnaði metin á 84. mínútu en tókst ekki að setja sigurmarkið. 1-1 jafntefli varð niðurstaðan þegar Tindastóll og Víkingur Reykjavík leiddu saman hesta sína í Bestu deild kvenna í blíðskaparveðri á Sauðárkróki í dag. Mikil barátta einkenndi fyrri hálfleikinn og liðin ætluðu að selja sig dýrt hérna á Sauðárkróki í dag. Jordyn Rhodes fékk fyrsta færi leiksins á 9. Mínútu þegar sending af vinstri kanti Tindastóls rataði inn fyrir vörnina. Jordyn stígur út varnarmanninn og er ein á móti markmanni en setur boltann framhjá. Mínútu seinna fékk Selma Dögg boltann eftir að Monica missti boltann út í teig eftir fyrirgjöf frá Sigurdísi, hún setti boltann í slánna í upplögðu færi. Fátt markvert gerðist eftir þetta í fyrir hálfleik og engin dauðfæri en mikil barátta var í leiknum. Seinni hálfleikur byrjaði svipað og fyrri hálfleikurinn, barátta um allan völl og liðin virtust ekki ætla að gefa færi á sér. Það dró þó til tíðina á 52 mínútu þegar sending frá Emmu Steinsen af hægri vængnum hitti ennið á Hafdísi Báru Höskuldsdóttur sem sneiddi hann fram hjá Monicu í marki Tindastóls og 0-1 staðan fyrir gestina. Leikurinn var jafn eftir þetta. Tindastóll sótti samt í sig veðrið þegar á leið og það bar árangur á 84. mínútu. Jordyn Rhodes braust upp kantinn hægra megin og plataði varnarmann Víkings upp úr skónum og setti boltann fyrir þar sem Emma Steinsen varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Bæði lið fengu flott færi eftir þetta og hefði sigurinn getað dottið báðum megin en það gerðist ekki og lauk leiknum með jafntefli hérna í dag. Atvik leiksins Þegar Jordyn Rhodes braust upp hægri kantinn og setti boltann fyrir þar sem varnarmaður Víkings var fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Stjörnur og Skúrkar Jordyn Rhodes í liði Tindastóls vann sína vinnu vel og upp úr því skoraði Tindastóll markið sitt. Hjá Víkingum voru þeir Sigdís Eva og Selma Dögg öflugar í dag og voru að skapa og búa til fyrir Víking. Það er ekki hægt að henda einum sem skúrk í dag, Emma Steinsen gerði vissulega sjálfsmark en hún lagði líka upp mark sem kvittaði það út. Hörkuleikur hjá tveimur flottum fótboltaliðum. Dómarar Strákanir á flautunni fá 8/10 í dag, þeirra frammistaða hafði ekki áhrif á úrslit leiksins, eina sem mátti fara betur voru ákvarðanir í innköstum, það fór stundum í vitleysu. Stemning og umgjörð Það var þétt setið í stúkunni í kvöld eða um 180 manns í dag, það var frítt á völlinn í boði EXTON sem var frábært framtak. Völlurinn var í frábæru standi eftir viðgerðir og vel mannað starfslið á vellinum í dag. Flott umgjörð hjá Tindastóli. Besta deild kvenna Tindastóll Víkingur Reykjavík
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti