Lífið

Um 700 manns mættu á Apa­vatn

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Menn og málleysingjar nutu veðurblíðunnar á Apavatni um helgina.
Menn og málleysingjar nutu veðurblíðunnar á Apavatni um helgina. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Um 700 manns mættu á Apavatn rétt við Laugarvatn um helgina á fjölskylduhátíð Rafiðnaðarsambands Íslands, sem er með eitt glæsilegasta orlofssvæði landsins við vatnið.

Í Skógarnesi við Apavatn í Bláskógabyggð á Rafiðnaðarsamband Íslands 16 hektara land þar sem er búið að byggja upp glæsilega aðstöðu fyrir félagsmenn og er alltaf verið að bæta smátt og smátt í frekari uppbyggingu. Mikil stemning var á svæðinu um helgina á árlegri fjölskylduhátíð þar sem ungir sem aldnir léku sér saman og nutu veðurblíðunnar.

„Hér var mjög margt í boði. Við vorum til dæmis með golfkeppni, frisbígolf keppni, fótboltakeppni, víðavangshlaup og margt fleira,” segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands

Og þetta er glæsilegt svæði hjá ykkur?

„Já, þetta er alveg svakalega flott svæði, sem við eigum hérna á Skógarnesi við Apavatn og gríðarlega vinsælt á meðal okkar félagsfólks. Það er náttúrulega búið að vera að byggja þetta upp á síðustu áratugum og hefur verið mikið lagt í þetta svæði hjá okkur,” segir Kristján Þórður.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, sem er mjög stoltur af svæðinu við Apavatn og svo er félagið líka með orlofssvæði í Miðdal rétt við Laugarvatn.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og fullt af sumarbústöðum eru á svæðinu og margir þeirra mjög nýlegir.

„Svæðið er alveg rosalega vel nýtt allt sumarið. Orlofshúsin eru bókuð allar vikur yfir sumartímann og allar helgar yfir vetrartímann og síðan eru tjaldsvæðin yfirfull allar helgar og oft á virkum dögum líka,” bætir Kristján Þórður við.

Orlofshúsin í Skógarnesi við Apavatn eru mjög vinsæl hjá félagsmönnum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Einn af hápunktum helgarinnar var hljómsveitin Sniglabandið, sem mætti á svæðið á laugardagskvöldinu með öll af sínu bestu lögum.

Gestum var boðið upp á pylsu með öllu á fjölskylduhátíðinni og drykki með, allt í boði félagsins.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Kort af svæðinu og umgengnisreglurnar.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.