Þetta kemur fram í hinum svokölluðu kynlegu tölum Reykjavíkurborgar, sem gefnar eru út ár hvert. Þær fela í sér tölulegar upplýsingar um kyn og margbreytileika í Reykjavík og eru hluti af markvissu jafnréttisstarfi borgarinnar í takt við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.
Í kynlegu tölunum kemur fram að fjöldi einstaklinga með hlutlausa kynskráningu hafi verið fjörutíu á fyrsta ársfjórðungi 2022 en áttatíu á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Í byrjun árs 2021 var opnað fyrir kynhlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá.
Þá kemur fram að hæst hlutfall barna og ungmenna, 0 til 19 ára, býr í Grafarholti og Úlfarsárdal, en þar er tæplega þriðjungur íbúa á því aldursbili. Hæst hlutfall fólks á aldrinum 20-39 ára býr í Miðborginni, þar sem 46 prósent íbúa eru á því aldursbili. Í Háaleiti og Bústaðahverfi er hæst hlutfall fólks 60 ára og eldri, en 23 prósent íbúa þar eru á því aldursbili.
Fleiri tölur um mál sem varða jafnrétti, lýðheilsu, atvinnuþátttöku, innflytjendur og fleira má nálgast á vef Reykjavíkurborgar.