Lífið

Mari tók kærastann með upp á jökul

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Mari fór með kærstanum Nirði í hans fyrsta utanvegahlaup um helgina. Hún segist afar stolt af honum.
Mari fór með kærstanum Nirði í hans fyrsta utanvegahlaup um helgina. Hún segist afar stolt af honum. Skjáskot

Ofurhlaupakonan Mari Järsk fór með kærstanum sínum, Nirði Lúðvígssyni ljósmyndara í hans fyrsta utanvegahlaup, Snæfellsjökulshlaupið, um helgina. Mari segir Njörð hafa verið peppaðan til að byrja með en í gríni segir hún hann hafa verið frekar leiðinlegur á meðan hlaupinu stóð, enda gríðarlega erfitt.

„Fyrsta utanvegahlaupið hjá mínu manni. Hann var mjög peppaður að fara í þetta en ekki eins glaður þegar hlaupið var byrjað. Hann vildi alls ekki tala við mig á meðan hlaupinu stóð og var bara frekar leiðinlegur en skiljanlega þar sem þetta var erfitt fyrir hann. Það er alveg gott að æfa smá áður en maður skráir sig í svona krefjandi hlaup,“ skrifar Mari við mynd af þeim síðan um helgina.

Parið hljóp tuttugu og tvo kílómetra frá Arnarstapa að Ólafsvík þar sem er allra veðra von. Hlauparar þurfa ýmist að kljást við snjó og drullu frá einum til sjö kílómetra af leiðinni.

Mari segist afar stolt af Nirði fyrir að hafa klára hlaupið á fínum tíma miðað við aðstæðum: „Hann er bestur og þetta var geggjuð helgi.“

Mari sigraði Bakgarðshlaup Náttúruhlaupa sem fór fram í Öskjuhlíðinni í byrjun maí mánaðar. Mari vann hlaupið eftir að hafa lokið 57 hringjum, eða rúmlega 380 kílómetra.

Hundruð hlaupara voru skráðir til leiks og hlupu þeir 6,7 kílómetra hring á klukkutímafresti þar til einn hlaupari stóð eftir.


Tengdar fréttir

„Ég væri ekkert án þeirra“

„Ég væri aldrei í jafnmiklu stuði og að finna jafn mikla gleði og hamingju ef þær væru ekki þarna. Þær eru mesti drifkrafturinn minn, ég held að ég myndi aldrei nenna að gera þetta ef þær væru ekki þarna,“ segir ofurhlaupakonan Mari Järsk um einstaka vináttu sína við hóp kvenna sem fylgja henni í flestöll hlaup. Mari er viðmælandi í Einkalífinu.

„Ég hef aldrei horft á mig sem fórnarlamb“

„Þegar allt kemur til alls skiptir máli að ég sé ekki að bregðast sjálfri mér, það skiptir ekki máli hvað öðrum finnst,“ segir ofurhlauparinn Mari Järsk en hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Einkalífinu.

Mýrdalshlaup í þoku og súld

Mýrdalshlaupið fór fram í ellefta skipti í Vík í Mýrdal í gær. Keppt var í 10 km og 21 km hlaupi en auk þess fór fram 3 km skemmtiskokk sem var vel sótt. Talsverð súld og þoka var yfir rásmarkinu í fjörunni í Vík þegar tæplega 400 keppendur lögðu af stað kl 11.00 í gærmorgun.

„Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði

Hlaupaskórnir sem Mari Järsk var klædd í þegar hún hljóp 57 hringi í Bakgarðshlaupinu og sló Íslandsmet eru nú á uppboði. Uppboðið er á vegum góðgerðardags Hagaskóla, sem fór reyndar fram í fyrradag.

Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum

Mari Järsk gat ekki staðið upp í kvöld til að taka við verðlaunum sem sigurvegari Bakgarðshlaupsins í ár. Mari vann hlaupið eftir að hafa lokið 57 hringjum. Mari sagði fætur hennar hafa bólgnað svo upp eftir hlaupin að hún gæti ekki staðið upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.