Fótbolti

Hólmbert fylgir Holsten Kiel ekki upp í úrvalsdeildina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hólmbert Aron Friðjónsson lék 29 leiki með Holsten Kiel og skoraði fimm mörk.
Hólmbert Aron Friðjónsson lék 29 leiki með Holsten Kiel og skoraði fimm mörk. getty/Oliver Hardt

Hólmbert Aron Friðjónsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Holsten Kiel í Þýskalandi. Hann yfirgefur félagið þegar samningur hans við það rennur út um mánaðarmótin.

Hólmbert gekk í raðir Holsten Kiel frá Brescia á Ítalíu fyrir þremur árum. Hann var lánaður til Lilleström í Noregi 2022.

Á síðasta tímabili lék Hólmbert fjórtán leiki með Holsten Kiel í þýsku B-deildinni og skoraði eitt mark. Holsten Kiel endaði í 2. sæti og tryggði sér þar með sæti í þýsku úrvalsdeildinni. Alls lék Hólmbert 29 leiki fyrir Holsten Kiel og skoraði fimm mörk.

Hólmbert, sem er 31 árs, hefur komið víða við á ferlinum. Hér heima lék hann með HK, Fram, KR og Stjörnunni og erlendis hefur hann leikið með Holsten Kiel, Lilleström, Brescia, Celtic, Bröndby og Álasundi.

Hólmbert hefur spilað sex A-landsleiki og skorað tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×