Innlent

Úti­lokar ekki rétt til reykinga á hjúkrunarheimilum

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Skúli Magnússon, Umboðsmaður Alþingis.
Skúli Magnússon, Umboðsmaður Alþingis. Arnar/Getty

Réttur starfsmanna til reyklauss vinnuumhverfis útilokar ekki að íbúa hjúkrunarheimilis sé veitt undanþága til að reykja inni á eigin herbergi ef aðstæður leyfa. Umboðsmaður Alþingis telur þó ekki forsendur til að gera athugasemdir við ákvörðun sveitarfélags sem meinaði íbúa að reykja inn á herbergi sínu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Umboðsmanns Alþingis en málið á rætur sínar að rekja til þess að íbúi á hjúkrunarheimili kvartaði yfir því að fá ekki að reykja inni í eigin herbergi. Hjúkrunarheimili hafði tekið þá ákvörðun að banna reykingar vegna rétts starfsfólks til reyklauss umhverfis.

Vinnustaðurinn einnig heimili

Sveitarfélagið sem rak heimilið vísaði til þessa í svari sínu við kvörtun íbúans og tók fram að það þyrfti að sinna daglegri þjónustu inn á herbergjum íbúa. 

Umboðsmaður Alþingis gagnrýndi ríka áherslu sveitarfélagsins á að hjúkrunarheimilið væri vinnustaður en ekki var ráðið úr svörum þess til íbúans að tekið hafi verið tillit til þess að einnig væri um heimili að ræða fyrir þá sem þar dveljast.

Umboðsmaður áréttaði að í lögum væri sérstaklega gert ráð fyrir að heimilt væri að veita undanþágu frá reykingabanni á íbúðarherbergjum.

Gerði ekki athugasemd við ákvörðunina

„Gæti réttur starfsmanna til reyklauss vinnuumhverfis ekki fortakslaust girt fyrir að sú heimild væri nýtt. Leggja þyrfti heildstætt mat á aðstæður, þ. á m. hagsmuni annarra heimilismanna og rétt starfsfólks til reyklauss umhverfis,“ segir í tilkynningu.

Reykingabannið grundvallaðist þó einnig á mati á loftræsingu og loftgæðum í einstökum rýmum og að tóbaksreykingar á herbergjum væru ekki mögulegar án þess að þær spilltu loftgæðum annarra sem þar dveldust eða störfuðu á þessu tiltekna hjúkrunarheimili.

Þá hefðu verið gerðar ráðstafanir til þess að íbúar gætu reykt í sérstakri aðstöðu utan herbergja sinna. Umboðsmaður taldi því ekki forsendur til að gera athugasemdir við efnislega ákvörðun sveitarfélagsins í máli íbúans um undanþágu til reykinga inni á eigin herbergi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×