Viska, nýtt stéttarfélaf innan BHM reið á vaðið í gær og skrifaði undir samning, fyrst BHM félaga. Við ræðum við formann BHM í hádegisfréttum sem segist vonast til að undirskrift Visku komi hreyfingu á mál annarra félaga.
Þá verður rætt við sérfræðing í þjóðernishyggju eftir stórsigur frönsku Þjóðfylkingarinnar í fyrri umferð þingkosninganna þar í landi. Hann efast þó um að hreyfingin nái völdum í Frakklandi eftir seinni umferð.
Einnig fjöllum við um fækkun sauðfjár á milli ára. Formaður Bændasamtaka Íslands segir það vera viðvarandi þróun.
Í íþróttapakka dagsins verður svo fjallað um brotthvarf Heimis Hallgrímssonar frá Jamaíka en hann sagði af sér sem þjálfari landsliðsins í gær og svo förum við yfir dramatíkina á EM í Þýskalandi frá því í gær.