Fótbolti

Thiago leggur skóna á hilluna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Thiago Alcantara hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Thiago Alcantara hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Nick Taylor/Liverpool FC/Liverpool FC via Getty Images

Félagsskiptamógúllinn Fabrizio Romano fullyrðir að Thiago Alcantara, leikmaður Liverpool, sé búinn að ákveða að leggja skóna á hilluna í sumar.

Thiago, sem fagnaði nýlega 33 ára afmæli sínu, á að baki farsælan feril þar sem hann hefur leikið með Barcelona, Bayern München og nú síðast Liverpool.

Á ferli sínum hefur hann unnið allt sem í boði er. Hann varð fjórum sinnum spænskur meistari með Barcelona og þýskur meistari með Bayern München í þrígang. Þá vann hann Meistaradeild Evrópu í tvígang ásamt því að verða spænskur, þýskur og enskur bikarmeistari.

Þrátt fyrir að eiga brasilíska foreldra og vera fæddur á Ítalíu lék hann með öllum yngri landsliðum Spánar og A-landsliði þjóðarinnar í tíu ár, frá 2011-2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×