Lífið

Stjörnulífið: Dauð mús og djamm í Mykonos

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stjörnur landsins nutu sólarinnar í liðinni viku.
Stjörnur landsins nutu sólarinnar í liðinni viku. SAMSETT

Síðastliðin vika var viðburðarík að vanda en veðrið stendur sannarlega upp úr hjá samfélagsmiðlastjörnunum, hvort sem það hafi verið í bongó blíðu á höfuðborgarsvæðinu, í kulda fyrir norðan eða í suðrænni sól. 

Afmæli og tímamót

Leikkonan Svandís Dóra Einarsdóttir hefur fagnað stórafmæli sínu í marga daga og segir afmælið endast í heilan mánuð. 

Hjónin Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir fögnuðu Sykurbrúðkaupi eða sex ára brúðkaupsafmæli. Þær rifjuðu upp fallegar minningar frá einstökum degi. 

Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manúel fagnaði 34 ára afmæli sínu á dögunum og birti skemmtilega myndaseríu. 

Leikarinn og leikskáldið Bjarni Snæbjörnsson giftist sínum heittelskaða Bjarma Fannari í Ráðhúsinu föstudaginn 21. júní síðastliðinn við pínulitla athöfn. 

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og tannlæknirinn Hafdís Björk fögnuðu sjö ára brúðkaupsafmæli. Þau voru stödd á Akureyri í síðustu viku á N1 mótinu og Jón tróð sömuleiðis upp á Græna hattinum. 

Það voru ótal margir fyrir norðan bæði á N1 mótinu og Pollamótinu. Þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið upp á sitt besta um helgina virðist stemningin hafa verið góð og ómögulegt var að panta borð á veitingastaði á Akureyri þar sem allt var uppbókað. Sem dæmi var Viktoría Hermannsdóttir sjónvarpskona á svæðinu ásamt sínum heittelskaða Sóla Hólm og fjölskyldu. Útvarpskonan Þórdís Valsdóttir lét sig ekki heldur vanta.

Samkvæmislífið og skvísulæti

Förðunarfræðingurinn og ofurskvísan Kolbrún Anna Vignisdóttir naut lífsins í borginni um helgina og skellti sér út á lífið í trylltu eldrauðu dressi. 

Tónlistarkonan og Eurovisionfarinn Diljá Pétursdóttir kom fram á hátíðinni Lopapeysan og segist elska hana. 

Fyrirsætan Birta Abiba segir sumarið einfaldlega verða betra og betra og birti bikinímyndir í tilefni af því.

Páll Óskar og Erpur héldu risa ball á Pollamótinu á Akureyri og voru þakklátir. 

Dansarinn, fasteignasalinn og þjálfarinn Tara Sif var mjög þakklát fyrir sólina á Íslandi.

Grammy verðlaunahafinn og ein frægasta söngkona okkar Íslendinga Laufey segir best að vera heima. 

Áhrifavaldurinn og útvarpskonan Gugga í gúmmíbát skellti sér á djammið um helgina í hvítum og sumarlegum klæðnaði. 

Stjörnulögfræðingurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson birti rándýra mynd af sér og Nick Cave í Hörpu. 

Ferðalög og útivera

Leikkonan Þórdís Björk er á ferðalagi með ástinni sinni Júlí Heiðari, börnum þeirra og annarri fjölskyldu á Ítalíu. Þar hefur ýmislegt gengið á afturfótunum og hefur Þórdís deilt ýmsum fyndnum atvikum á Instagram. Þar á meðal þessu myndbandi hér af dauðri mús:

Áhrifavaldurinn, dansarinn og raunveruleikastjarnan Ástrós Traustadóttir nýtur lífsins í Portúgal og birti ofurskvísumyndir þaðan.

Raunveruleikastjarnan, markaðsfulltrúinn og áhrifavaldurinn Magnea Björg Jónsdóttir lék sér með klæðaburð í sólinni á Króatíu. 

Vinkona hennar Sunneva Einars gerði það sömuleiðis. 

Áhrifavaldurinn og World Class stöðvarstjórinn Björn Boði Björnsson er að lifa sínu besta lífi í Mykonos með góðum vinum. 

TikTok súperstjarnan Embla Wigum er sömuleiðis á grísku eyjunni Mykonos og birti myndir af sér í bláum kjól. Mykonos er aðal partýeyjan á Grikklandi og þar koma gjarnan frægustu plötusnúðar í heimi að troða upp. 

Tónlistarkonan Bríet tróð upp á Vestfjörðum um helgina og segir lífið of fallegt til þess að vera í fýlu. Góður boðskapur inn í vikuna. 

Hatarinn og myndlistarmaðurinn Klemens Hannigan naut sólarinnar. 

Herra Hnetusmjör birti filmumynd á ferðalagi og fór með textabrot eftir sjálfan sig. 

Plötusnúðurinn Benni B.Ruff spilaði sögulegt gigg á svölunum á Edition hótelinu í Barcelona í bongó blíðu. 

Benni B.Ruff spilaði á Edition hótelinu í Barcelona.Instagram story @bennib.ruff





Fleiri fréttir

Sjá meira


×