Innlent

Afmælisfundur NATO í skugga á­taka í gjörbreyttum heimi

Heimir Már Pétursson skrifar
Lloyd Austin varnarmálaráðherra Bandaríkjanna tekur á móti Jens Stoltenberg aðalframkvæmdastjóra NATO við Pentagon í dag. Þriggja daga hátíðarfundur í tilefni 75 ára afmælis NATO hefst í Washington á morgun.
Lloyd Austin varnarmálaráðherra Bandaríkjanna tekur á móti Jens Stoltenberg aðalframkvæmdastjóra NATO við Pentagon í dag. Þriggja daga hátíðarfundur í tilefni 75 ára afmælis NATO hefst í Washington á morgun. AP/Kevin Wolf

Utanríkisráðherra segir 75 ára afmælisleiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington á morgun, haldinn í skugga meiriháttar breytinga og spennu í alþjóðakerfinu. Á fundinum muni bandalagsríkin formfesta stuðning sinn við Úkraínu til lengri tíma.

Þess verður minnst á þriggja daga leiðtogafundi NATO sem hefst í Washington í Bandaríkjunum annað kvöld að 75 ár eru liðin frá stofnun bandalagsins. Íslendingar voru meðal tólf stofnríkja NATO en nú eru aðildarríkin þrjátíu og tvö.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sækir leiðtogafundinn ásamt Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur utanríkisráðherra. Hún segir fundinn sannarlega vera tímamót í sögu bandalagsins.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að leiðtogafundurinn í Washington sendi frá sér skýr skilaboð, meðal annars um framtíðarstuðning við Úkraínu.Stöð 2/Einar

„En fundurinn er haldinn í skugga þess sem er að gerast. Við erum einifaldlega að horfa upp á meiriháttar breytingar á alþjóðakerfinu og meiri spennu en við höfum séð í mjög marga áratugi,“ segir Þórdís Kolbrún. Auk stríðsátaka væru pólitískar væringar víða. Því skipti miklu máli að niðurstaða fundarins verði skýr.

„Um einingu bandalagsins, um getu bandalagsins gagnvart fælingarmætti, fjárfestingu. Það sé algerlega skýrt og traust að bandalagið geti varið þau ríki sem tilheyra bandalaginu. Okkur þar á meðal,“ segir utanríkisráðherra.

Fundurinn verði líka mikilvægur vegna gagnrýni Úkraínumanna og fleiri um seinagang og hik í stuðningi aðildarríkjanna við Úkraínu eftir innrás Rússa.

„Við leggjum um með að svara þessum áhyggjum með ákvörðunum inni á fundinum. Bæði hvað varðar hlutverk Atlantshafsbandalagsins í þessari skipulaginu, skuldbindingu þegar kemur að langtíma stuðningi, sem verður þá hluti af niðurstöðu fundarins,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir.


Tengdar fréttir

Rutte næsti framkvæmdastjóri NATO

Forsætisráðherra Hollands, Mark Rutte, verður næsti framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, NATO. Það varð ljóst í dag þegar eini andstæður Rutte, Klaus Iohannis, forseti Rúmeníu, dró framboð sitt til framkvæmdastjóra NATO til baka.

Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka

Vladimír Pútín Rússlandsforseti krefst þess að Úkraínumenn láti af hendi meira landsvæði í Kænugarði, fjarlægi hersveitir í eigin landi og dragi umsókn um aðild í Arlantshafsbandalginu til baka, til þess að hann bindi enda á stríð Rússa í Úkraínu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×