Sport

Fyrsta konan til að lyfta steininum Fullsterki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sandra Bradley með steininn Fullsterka í Dritvík.
Sandra Bradley með steininn Fullsterka í Dritvík. @sandrabradley_

Þýska aflraunakonan Sandra Bradley hefur lagt það í vana sinn að mæta til Íslands og lyfta steinum sem engin kona hefur lyft áður.

Hún var þannig fyrsta konan til að lyfta hinni frægu Húsafellshellu og á dögunum var hún mætt til Dritvíkur á Snæfellsnesi. Að þessu sinni lá það fyrir að lyfta steini sem hefur nafnið Fullsterkur.

Fullsterkur er þarna ásamt þremur öðrum léttari steinum sem heita Amlóði (23 kíló), Hálfdrættingur (54 kíló) og Hálfsterkur (100 kíló). Steinarnir voru notaðir á sínum tíma þegar þetta var útgerðarstaður og það þurfti að kanna styrk sjómannanna.

Fullsterkur er 154 kíló á þyngd og engin smásmíði. Það hafði líka engin konan lyft þessum steini fyrr en Sandra mætti á svæðið.

„Eftir að hafa verið fyrsta konan til að lyfta hinni goðsagnakenndu Húsafellhellu þá var ég mætt aftur til land elds og íss. Nú var ég fyrsta konan til að lyfta steininum Fullsterki,“ skrifaði Sandra Bradley á Instagram síðu sína.

„Fullsterkur er ekki aðeins krefjandi vegna þyngdarinnar (tvisvar sinnum líkamsþyngd mín). Stóra vandamálið er að hann er alveg sléttur eins og silki sem gerir erfitt að ná taki á honum. Ég þurfti því að finna öðruvísi leið en aðrir eru að lyfta honum,“ skrifaði Sandra.

„Að lyfta steinum er svo stórbrotið próf fyrir þig, ekki aðeins á styrk þínum heldur einnig færni. Að finna það út hvernig er best að lyfta steinum sem eru alls konar í laginu. Ég nýt þess í botn,“ skrifaði Sandra.

„Ég vona að ég geti verið innblástur fyrir aðrar konur í leit þeirra að sterkustu útgáfunni af þeim sjálfum, hvort sem það er út í náttúrunni, í lyftingasalnum eða hvar sem er í lífinu,“ skrifaði Sandra.

Hún sýndi myndband af sér lyfta steininum í Dritvík. Það má sjá hér fyrir neðan.

Sandra Bradley hefur fjórum sinnum verið sterkasta kona heims og hún hefur einnig unnið Arnold aflraunamótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×