Íslenski boltinn

„Ég hef engan á­huga á því að vera á bekknum“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frederick Schram verður mögulega með Val út tímabilið.
Frederick Schram verður mögulega með Val út tímabilið. vísir/bjarni

Margt bendir til þess að Valsmenn verði með tvo frábæra markverði í sínum herbúðum næstu mánuði. En aðeins einn þeirra getur verið inn á vellinum í einu.

Eins og fram kom á dögunum er markvörðurinn Ögmundur Kristinsson á leiðinni í Val. Frederik Schram er nú þegar markvörður liðsins en aftur á móti er hann á útleið frá félaginu. Nú er spurning hvað verður um Frederik Schram, hvort hann sé að yfirgefa félagið nú strax í júlí þegar að félagaskiptaglugginn opnar eða klárar hann tímabilið með Val. Rætt var við markvörðinn í Sportpakkanum á Stöð 2 í gærkvöldi.

„Eins og staðan var núna var ég ekki með þá tilfinningu að vilja vera áfram hjá félaginu og mér fannst í raun og veru mikilvægast að fylgja hjartanu,“ segir Frederick og heldur áfram.

Einbeitir sér að Valsmönnum í bili

„Eins og staðan er núna er ég bara leikmaður Vals og heldur áfram að einbeita mér hundrað prósent að því. En ég veit svo sem ekkert alveg hvað gerist. Ef það kemur upp lið sem vill fá mig núna þá er þetta ekkert endilega bara spurning hvað ég vill gera, heldur einnig hvað vill Valur gera. Svo það er erfitt að segja núna en ég er búinn að lofa Adda [Arnari Grétarssyni, þjálfara liðsins] og stjórn Vals að eins lengi og ég er hér er ég með hundrað prósent fókus.“

Frederik hefur varið mark Vals frá því í júní 2022 og verið einn fremsti markvörður deildarinnar undanfarin tvö ár. Valsmenn vildu hafa hann lengur í sínum herbúðum en eftir samtöl við Frederik var ljóst að það myndi ekki ganga. En veit Frederick hvort hann sé að fara núna á bekkinn hjá Val þegar Ögmundur kemur til liðsins?

„Arnar stjórnar því bara. En eins og staðan er núna er ég fyrsti markvörður en fótboltinn breytist fljótt. En ég hef engan áhuga á því að vera á bekknum hjá Val en þjálfarinn ræður þessu bara.“

Í spilaranum hér að ofan má sjá viðtalið við markvörðinn úr Sportpakka gærkvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×