Innlent

Veru­leg röskun á um­ferð í mið­bænum næstu vikur

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Til stendur að hefja gönguþverun þar sem Reykjastræti þverar Geirsgötu 15. júlí næstkomandi. Stefnt er að því að klára verkefnið fyrir verslunarmannahelgi, en framkvæmdirnar koma til með að hafa veruleg áhrif á umferð.
Til stendur að hefja gönguþverun þar sem Reykjastræti þverar Geirsgötu 15. júlí næstkomandi. Stefnt er að því að klára verkefnið fyrir verslunarmannahelgi, en framkvæmdirnar koma til með að hafa veruleg áhrif á umferð. Reykjavík

Framkvæmdir sem áætlaðar eru við Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur koma til með að hafa veruleg áhrif á umferðarflæði. Í næstu viku stendur til að hefja framkvæmdir við gönguþverun þar sem Reykjastræti þverar Geirsgötu.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að stefnt sé að því að hefja framkvæmdirnar 15. júlí næstkomandi og klára verkefnið fyrir verslunarmannahelgi. Malbikunarframkvæmdir séu þó alltaf háðar veðri.

Leggja hraðahindrun yfir Geirsgötu

Verkið felst í að fræsa burt núverandi malbik og leggja kantsteina báðum megin til að lyfta göngufletinum sex sentimetra upp yfir malbikshæð götunnar. Snjóbræðsla verður lögð í gönguflötinn og malbikað yfir.

Samhliða gönguþveruninni stendur til að malbika Geirsgötu og hluta Kalkofnsvegar og verða lokanir samnýttar eins og hægt er.

Bílakjallarinn á Hafnartorgi verður opinn allan tímann.

„Þessi vinna hefur veruleg áhrif á umferðarflæði. Tveimur akreinum Geirsgötu verður lokað í austur en umferð verður áfram til vesturs. Umferð verður færð til vesturs á milli akreina en allri umferð í austur eftir Geirsgötu verður vísað á Hringbrautina,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×