Innlent

Gengi Icelandair, vaxandi at­vinnu­leysi og skátar á Lands­móti

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
bylgjan-frettir_2024-Vísir-frétt-3x2@2x-100 1

Í hádegisfréttum fjöllum við um gengi Icelandair en hlutabréfaverð félagsins hefur lækkað undanfarið. 

Greinandi á markaði segir horfurnar þó ekki endilega jafn slæmar og halda mætti miðað við umræðuna. 

Þá fjöllum við um atvinnuleysi hér á landi en ákveðnar vísbendingar eru um að það fari nú vaxandi samhliða kólnun í hagkerfinu og minnkandi vexti í ferðamannaiðnaðinum.

Þá fjöllum við um Landsmót skáta sem haldið verður á Úlfljótsvatni um helgina. 

Í hádegisfréttum förum við yfir leiki þriggja íslenskra liða sem keppa í Sambandsdeild Evrópu í kvöld og fylgjumst með undirbúningi kvennalandsliðsins fyrir leikinn gegn Þjóðverjum um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×