Innlent

Aur­skriða í Syðridal: „Ég hef aldrei séð svona áður“

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Skriðan féll á slaginu ellefu í morgun að sögn sjónarvottar. 
Skriðan féll á slaginu ellefu í morgun að sögn sjónarvottar.  Hafþór Örn

Aurskriða féll í Syðridal nærri Bolungarvík klukkan ellefu í dag. Mikill hávaði fylgdi og svart ský myndaðist fyrir ofan skriðuna, sem náðist á myndband. 

Hafþór Örn Pétursson náði herlegheitunum á myndband og lýsir atburðarásinni í samtali við fréttastofu. „Við vorum þrír inni í stofu að spjalla og heyrum allt í einu þvílík læti og drunur,“ segir Hafþór. 

Í fyrstu hafi þeir haldið að nú væri farið að hvessa allhressilega, en þegar þeim var litið út um gluggan hafi þeir séð aurskriðuna.

„Ég hef aldrei séð svona áður,“ segir Hafþór. Hann segir skriðuna hafa náð út í flata en ekki drifið að Syðridalsvatni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×