Lífið

Simmi Vill birtir fyrstu myndirnar af ástinni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Simmi hefur haldið ástinni utan sviðljóssins síðastliðna mánuði.
Simmi hefur haldið ástinni utan sviðljóssins síðastliðna mánuði. Simmi Vill

Sigmar Vilhjálmsson, athafna- og veitingamaður, og kærastan hans Hafrún Hafliðadóttir nutu lífsins saman í fríi erlendis á dögunum. Simmi birti skemmtilega myndafærslu úr fríinu á Instagram í gær. 

„Góð vika í kærkomnu fríi,“ skrifar Simmi við myndirnar. Þar má meðal annars sjá parið spóka sig um í sólinni á rafhlaupahjólum, spila tennis og eiga rómantíska stund við sólarlagið á ströndinni. 

Simmi og Hafrún hafa verið að stinga saman nefjum í nokkra mánuði en reynt að halda sambandinu utan sviðljóssins. Á Instagram á dögunum endurbirti Simmi færslu frá Hafrúnu þar sem þau sátu í sólinni í umræddu fríi að spila Skítakall.

Fjórtán ára aldursmunur er á parinu en Simmi greindi frá sambandi þeirra í hlaðvarpsþættinum 70 mínútur í febrúar síðastliðnum án þess að nafngreina Hafrúnu.

Hafrún er fædd árið 1991 en Simmi árið 1977. Samtals eiga þau sex drengi úr fyrri hjónaböndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.