Verulega er farið að hægja á vexti útlána lífeyrissjóða til heimila
![Heimilin fóru í vaxandi mæli að sækja í íbúðalán hjá lífeyrissjóðunum á árunum 2022 og 2023 samtímis því að vextir fóru ört hækkandi.](https://www.visir.is/i/651AE6551747DDD12EA7C18043A8CF475B26B1F8742E15ED359812FF01960EF0_713x0.jpg)
Vísbendingar eru um að mjög sé farið að hægja á útlánavexti lífeyrissjóða til heimila en sjóðirnir hafa ekki veitt minna af slíkum lánum frá því á haustmánuðum ársins 2021. Frá áramótum hafa sjóðsfélagalánin nærri helmingast miðað við sama tímabil í fyrra þegar lífeyrissjóðirnir buðu upp á hagstæðari kjör en bankarnir.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/3CDC685C203A4D1FFD512C8EE811B9966F6E4C1D551781978BE95D943C4D79E4_308x200.jpg)
Ekkert lát er á auknum verðtryggðum íbúðalánum hjá lífeyrissjóðum
Umskipti hafa orðið á íbúðalánamarkaði á síðustu mánuðum og misserum þar sem neytendur eru í síauknu mæli farnir að sækja á ný í verðtryggð íbúðalán umfram óvertryggð, bæði hjá bönkunum og lífeyrissjóðum, samhliða ört hækkandi vaxtastigi. Ný verðtryggð útlán lífeyrissjóða til heimila í nóvember á liðnu ári hafa ekki verið meiri frá því í marsmánuði við upphaf faraldursins 2020.
![](https://www.visir.is/i/B19E0C4B17897393D4A729BEE3BEEE722123DF85112AF37E3D3BFDF9C422AAF2_308x200.jpg)
Óljóst hvernig SÍ vill taka á umsvifum lífeyrissjóða á lánamarkaði
Æðstu stjórnendur Seðlabanka Íslands hafa síðustu misserum kallað eftir því að regluverkinu í kringum lífeyrissjóði verði breytt í samræmi við aukin umsvif sjóðanna á húsnæðislánamarkaði og hefur jafnvel komið fram í máli seðlabankastjóra að honum hugnist ekki þátttaka lífeyrissjóða á markaðinum. En þrátt fyrir að stjórnendur bankans hafi haft uppi stór orð um auknar kröfur gagnvart lífeyrissjóðum er ekki ljóst hvernig þeir vilja taka á lánastarfsemi sjóðanna nú þegar hlutdeild þeirra á markaðinum fer aftur vaxandi.