Erlent

Fundu sprengjur í bíl og á heimili á­rásar­mannsins

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Lögregla í Bandaríkjunum girti af heilmikið svæði í kringum heimili thomasar.
Lögregla í Bandaríkjunum girti af heilmikið svæði í kringum heimili thomasar. AP

Erlendir miðlar greina frá því að sprengjur hafi fundist í bíl Thomasar Crooks, sem og á heimili hans. Bíllinn fannst nálægt svæðinu þar sem kosningafundurinn fór fram í gær.

Lögreglu bárust fjölda tilkynninga um grunsamlega böggla á svæðinu. Sprengjusérfræðingar voru sendir á vettvang og fundu sprengiefni í bíl Thomasar. Wall street journal greindi upphaflega frá þessu.

Skömmu seinna fundust svo sprengiefni á heimili mannsins, í Butler í Pennsylvaníu.

Thomas Matthew Cooks, sem grunaður er um að hafa skotið að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta í gær var aðeins tvítugur. New York Post segir að Crooks hafi verið skráður í Repúblikanaflokkinn. Ekki er vitað hvert tilefni eða ástæða árásarinnar var að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×