Fótbolti

Liverpool hefur við­ræður við Marc Guehi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Liverpool hefur áhuga á því að fá Marc Guehi í sínar raðir.
Liverpool hefur áhuga á því að fá Marc Guehi í sínar raðir. Stu Forster/Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur áhuga á því að fá enska landsliðsmiðvörðinn Marc Guehi, leikmann Crystal Palace, í sínar raðir í sumar.

Guehi er 24 ára gamall miðvörður sem spilaði stórt hlutverk í enska landsliðinu sem fór alla leið í úrslit Evrópumótsins í fótbolta. Mótinu lauk í gær, sunnudag, með sigri Spánverja þar sem Guehi lék allan leikinn fyrir enska liðið.

Það er félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano sem greinir frá því að Liverpool hafi áhuga á því að fá varnarmanninn í sínar raðir og að félagið hafi nú þegar hafið viðræður við Crystal Palace um kaup á leikmanninum.

Guehi lék með unglingaliðum Chelsea, en náði aldrei að spila deildarleik fyrir liðið í ensku úrvalsdeildinni. Hann var á láni hjá Swansea tímabilið 2020-2021, en hefur leikið með Crystal Palace síðan.

Alls hefur Guehi leikið 98 deildarleiki fyrir Crystal Palace og 17 leiki fyrir enska landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×