Handbolti

Mögnuð endur­koma tryggði ís­lensku strákunum stig

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Íslensku strákarnir nældu í sterkt stig í dag.
Íslensku strákarnir nældu í sterkt stig í dag. HSÍ

Íslenska drengjalandsliðið í handbolta, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, nældi í sterkt stig er liðið mætti Portúgal í milliriðli EM í dag. Íslenska liðið var mest sex mörkum undir í seinni hálfleik.

Evrópumótið fer fram í Slóveníu og íslensku strákarnir berjast um sæti í undanúrslitum. Efstu tvö lið milliriðilsins fara í undanúrslit, en liðin sem hafna í 3. og 4. sæti keppa riðilsins um 5.-8. sæti mótsins.

Mikið jafnræði var á með liðunum í fyrri hálfleik og munurinn varð aldrei meiri en þrjú mörk fyrir hlé. Portúgalska liðið hafi yfirhöndina á upphafsmínútum leiksins, en íslensku strákarnir náðu forystunni þegar fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður.

Portúgalir reyndust hins vegar sterkari á lokametrum hálfleiksins og leiddu með tveimur mörkum þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja, staðan 17-15.

Í síðari hálfleik tók portúgalska liðið öll völd fyrstu mínúturnar og náði mest sex marka forskoti í stöðunni 24-18. Íslensku strákarnir gáfust þó ekki upp og söxuðu hægt og bítandi á forskot portúgalska liðsins.

Þegar tæp hálf mínúta var eftir var munurinn kominn niður í eitt mark og íslenska liðið vann boltann. Skarphéðinn Ívar Einarsson jafnaði metin fyrir Ísland í 33-33 þegar innan við tíu sekúndur voru eftir, en portúgalska liðið komst í sókn og fiskaði vítakast í þann mund sem leiktíminn rann út.

Ísak Steinsson gerði sér hins vegar lítið fyrir og varði vítið og niðurstaðan því jafntefli, 33-33. Næsti leikur íslenska liðsins er gegn Austurríki í fyrramálið, en Ísland situr í 3. sæti riðilsins með eitt stig, tveimur stigum á eftir toppliði Portúgals og einu stigi á eftir Spánverjum sem eiga leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×