Sport

Ómar Ingi: Það er í skoðun að styrkja liðið

Andri Már Eggertsson skrifar
Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, var svekktur eftir leik 
Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, var svekktur eftir leik  vísir/Diego

Taphrina HK heldur áfram. HK-ingar fóru í Hafnarfjörðinn og töpuðu 3-1 gegn FH. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, var svekktur eftir leik og sagði að hann myndi reyna að styrkja liðið í félagaskiptaglugganum.

„FH hefði getað skorað meira en eitt mark í fyrri hálfleik og við vorum að gefa mörg færi á okkur en við lifðum það af og náðum að jafna. Mér fannst lítið að gerast í leiknum þegar FH komst í 2-1 en það var hundfúlt,“ sagði Ómar Ingi Guðmundsson eftir leik.

HK fékk skell í síðustu umferð gegn ÍA þar sem liðið tapaði 0-8. Ómar var ósáttur með hvernig hans menn byrjuðu leik kvöldsins og voru stálheppnir að hafa bara fengið á sig eitt mark í fyrri hálfleik.

„Annan leikinn í röð erum við að fá á okkur mark eftir fast leikatriði. Við vorum búnir að horfa á og tala um þessa rútínu hjá FH í hornspyrnum og það var líka þannig gegn ÍA. Það var því ótrúlega svekkjandi að hafa lent undir upp úr því og annað markið kemur líka úr hornspyrnu.“

„Þetta var auðvitað miklu betra en síðast en að fá á sig tvö mörk upp úr hornspyrnu var grátlegt.“

Ómar vildi ekki meina að skiptingarnar sem FH gerði væru ástæðan fyrir því að heimamenn hefðu unnið leikinn.

„Í þriðja markinu vorum við farnir að elta jöfnunarmarkið. Mörkin sem þeir skoruðu hafði ekkert með skiptingar eða breytingar á áherslum að gera. Það skiptir engu máli hvað manni finnst um frammistöðuna því ef maður fær á sig tvö mörk eftir hornspyrnu þá er það alltaf svekkjandi.“

Þetta var þriðja tap HK í röð og aðspurður hvort hann ætlaði að styrkja liðið í glugganum sagði Ómar að ætlaði að reyna það.

„Það er í skoðun Ívar Orri [Gissurarson] er að fara til Bandaríkjanna, Marciano [Aziz] er farinn. Ívar er að koma til baka, Atli Arnarson kom inn á, Eiður Gauti [Sæbjörnsson] er að koma til baka,“ sagði Ómar Ingi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×